Fótbolti

Ellefti sigur Barcelona í röð | MSN-tríóið komið með 100 mörk

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Messi, Munir og Suárez sáu að skora mörk Barcelona í dag.
Messi, Munir og Suárez sáu að skora mörk Barcelona í dag. Vísir/Getty
Barcelona vann sinn ellefta leik í röð í spænsku 1. deildinni í fótbolta þegar liðið rúllaði yfir Eibar, 0-4, á útivelli í dag.

Börsungar eiga spænska meistaratitilinn vísan en liðið er með 11 stiga forskot á Atlético Madrid sem er í 2. sæti. Tólf stigum munar svo a Barcelona og Real Madrid sem er í 3. sætinu.

Lionel Messi skoraði tvívegis fyrir Barcelona í dag og þeir Munir El Haddadi og Luís Suárez gerðu sitt markið hvor.

MSN-tríóið ógurlega (Messi, Suárez og Neymar) hefur nú skorað samtals 100 mörk í öllum keppnum á tímabilinu sem er mögnuð tölfræði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×