Lífið

Þessi atriði komust áfram í Ísland Got Talent

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Afar mjótt var á munum.
Afar mjótt var á munum.
Tvö atriði komust áfram í fyrsta undanúrslitaþætti Ísland Got Talent, sem sýndur var í beinni útsendingu á Stöð 2 í kvöld. Baráttan var afar hörð og mjótt var á munum en að lokum stóðu þau Símon og Halla uppi sem sigurvegarar og hópurinn Kyrrð hafnaði í öðru sæti.

Atkvæðin féllu jafnt hjá dómurum og skar því símakosningin úr um sigurvegara. Einungis nokkur atkvæði voru á milli Kyrrðar og Guðmundar Reynis, en sem fyrr segir eru aðeins tvö atriði sem fara áfram í úrslitaþáttinn.

Hægt verður að sjá siguratriðin á Vísi síðar í kvöld.

vísir/daníel þór
vísir/daníel þór
vísir/daníel þór
vísir/daníel þór
vísir/daníel þór
vísir/daníel þór
vísir/daníel þór

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×