Glamour

Willow Smith nýtt andlit Chanel

Ritstjórn skrifar
Willow Smith og Karl Lagerfeld
Willow Smith og Karl Lagerfeld
Willow Smith, dóttir leikarana Jada Pinkett Smith og Will Smith, er ný talskona og andlit Chanel. 

Var það tilkynnt eftir haust og vetrar sýningu Chanel 2016/2017.

Hin fimmtán ára gamla, fjölhæfa Willow bætist þar með í hóp með Lily-Depp Rose, Kristen Stewart og Blake Lively. Ekki hefur verið gefið út hvert fyrsta verkefni Willow fyrir Chanel verður. 

Er þetta ekki fyrsta tískuverkefni Willow en í fyrra sat hún fyrir í auglýsingaherferð hjá Marc Jacobs.

Hún hefur einnig gert það gott í tónlistarheiminum og er eitt þekktasta lag hennar Whip My Hair sem hún gaf út aðeins tíu ára gömul og í desember í fyrra gaf hún út plötu.






×