Körfubolti

Sjáðu troðslurnar hjá Dempsey, Hill og flautukörfuna hjá Hauki

Anton Ingi Leifsson skrifar
Körfuboltakvöld var sem fyrr á dagskrá Stöðvar 2 Sports í gærkvöldi, en þá gerðu þeir félagar upp 18. umferðina sem var að líða í Dominos-deild karla.

Myron Dempsey var í stuði þegar Tindastóll valtaði yfir Snæfell og tróð hann meðal annars tvisvar mjög laglega. Þessar tvær troðslur hans koma til greina se tilþrif umferðarinnar.

Einnig er hægt að kjósa um svakalega flautukörfu Haukamannsins, Hauks Óskarssonar, en hann skoraði hana undir lok þriðja leikhluta. Haukar unnu að endingu í framlengingu.

Að lokum var það svo Jerome Hill sem tróð ansi laglega fyrir Keflavík í tapi gegn KR, en það var eitt af því fáa sem markvert var í tapi Keflavíkur gegn KR í gærkvöldi.

Öll tilþrifin má sjá í sjónvarpsglugganum hér efst í fréttinni og kjósa má á Twitter-síðu Körfuboltakvölds hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×