Formúla 1

Myndband: Nico Rosberg um borð í nýja Mercedes bílnum

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Mercedes bíll síðasta árs.
Mercedes bíll síðasta árs. Vísir/Getty
Mercedes liðið setti nýja Formúlu 1 bílinn sinn á braut í fyrsta skipti í gær. Hér má sjá myndband sem tekið var upp á myndavél á hjálmi Nico Rosberg, annars ökumanna liðsins.

Liðin mega aka 100 km undir því yfirskyni að um auglýsingaupptökur sé að ræða. Mercedes notaði daginn til að hrista bílinn saman.

Rosberg hóf daginn en Lewis Hamilton tók svo við. W07 bílnum er ætlað að tryggja Mercedes liðinu þriðja heimsmeistaratitil bílasmiða og ökumanna í röð.

Bíllinn mun ekki fara í gang aftur fyrr en á mánudag, þegar æfingar hefjast fyrir komandi tímabil. Í dag er sléttur mánuður þangað til fyrsta keppni tímabilsins fer fram í Ástralíu.

Hér fyrir neðan má sjá myndband af akstri bílsins.


Tengdar fréttir

Ferrari frumsýnir nýjan fák

Ferrari frumsýndi í dag nýjasta bíl sinn, sem fengið hefur yfirhalningu. Bíllinn verður keppnisbíll Ferrari í ár.

Pascal Wehrlein keppir með Manor

Pascal Wehrlein mun aka með Manor liðinu á komandi tímabili í Formúlu 1. Wehrlein var þróunarökumaður Mercedes liðsins á síðasta tímabili ásamt því að verða meistari í DTM.

Frumsýningar í Formúlu 1

Formúlu 1 tímabilið hefst 18. mars næstkomandi, með föstudagsæfingum í Ástralíu. Fyrst fara fram æfingar og frumsýningar liðanna á nýjum bílum.

Myndband: McLaren setur í gang

McLaren og Honda endurnýjuðu kynni sín í Formúlu 1 fyrir síðasta tímabil. Árangurinn lét á sér standa og liðið náði aðeins í 27 stig og níunda sæti í keppni bílasmiða. Liðið ætlar að gera betur í ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×