Sport

Þorsteinn vann langstökkið

Tómas þór Þórðarson skrifar
Þorsteinn Ingvarsson fékk tvenn gullverðlaun.
Þorsteinn Ingvarsson fékk tvenn gullverðlaun. vísir/anton brink
Þorsteinn Ingvarsson úr FH vann sigur í langstökki á Meistaramóti Íslands í frjálsíþróttum innanhúss í dag.

Þorsteinn stökk lengst 7,29 metra í sjöttu tilraun, en það var lang lengsta stökkið hans í dag. Hann fór fyrst yfir sjö metrana þegar hann stökk 7,11 metra í fimmtu tilraun.

Kristinn Torfason úr FH fékk silfur með stökki upp á 7,12 metra sem hann náði í sjöttu og síðustu tilraun, en Andri Snær Ólafsson Lukes fékk brons. Hann stökk lengst 6,50 metra.

Þetta eru önnur gullverðlaun Þorsteins á mótinu en hann vann einnig langstökkið í gær. Þorsteinn hefur verið besti stökkvari Íslands undanfarin misseri.


Tengdar fréttir

Aníta hljóp ein

Aníta Hinriksdóttir var ótvíræður sigurvegari í 800 metra hlaupi kvenna, en hún var eini keppandinn sem hljóp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×