Handbolti

Fimm mörk frá Guðjóni í sigri Barcelona

Anton Ingi Leifsson skrifar
Guðjón Valur fagnar marki í búningi Barcelona.
Guðjón Valur fagnar marki í búningi Barcelona. vísir/getty
Barcelona rígheldur í toppsætið í B-riðli Meistaradeildar Evrópu, en Barcelona vann fimm marka sigur á MOL-Pick Szeged, 30-25.

Spánverjarnir byrjuðu betur og leiddu með naumindum fyrstu tuttugu mínúturnar. Á síðustu tíu mínútum fyrri hálfleiks stigu heimamenn á bensíngjöfina og voru fimm mörkum yfir í hálfleik, 19-14.

Í síðari hálfleik héldu spænsku meistararnir forystunni út allan leikinn og í rauninni var aldrei spurning hvoru megin sigurinn myndi enda. Lokatölur 30-25.

Wae Jallouz var markahæstur hjá Barcelona með sex mörk ásamt Kiri Lazarov. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði fimm mörk úr sex skotum, en Dean Bombac skoraði sex mörk fyrir Szeged.

Barcelona er á toppi riðilsins með 19 stig eftir leikina tólf sem búnir eru og eru á upp úr riðlinum. Szeged er í þriðja sætinu með fimmtán stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×