Innlent

Tjáir sig um brotin á Íslandi: „Ég er ekki barnaníðingur“

Bjarki Ármannsson skrifar
Scobie, sem í síðasta mánuði hlaut tólf mánaða fangelsisdóm við Héraðsdóm Reykjaness fyrir ítrekuð fjársvikabrot og dreifingu á barnaklámi, segist í samtali við skoska blaðið The Evening Telegraph ákveðinn í því að snúa blaðinu við.
Scobie, sem í síðasta mánuði hlaut tólf mánaða fangelsisdóm við Héraðsdóm Reykjaness fyrir ítrekuð fjársvikabrot og dreifingu á barnaklámi, segist í samtali við skoska blaðið The Evening Telegraph ákveðinn í því að snúa blaðinu við. Vísir
Breski ríkisborgarinn Reece Scobie, sem í síðasta mánuði hlaut tólf mánaða fangelsisdóm við Héraðsdóm Reykjaness fyrir ítrekuð fjársvikabrot og dreifingu á barnaklámi, segist í samtali við skoska blaðið The Evening Telegraph ákveðinn í því að snúa blaðinu við. Scobie vakti á sínum tíma mikla athygli fyrir efnahagsbrot í heimalandinu, þangað sem hann er nú kominn og þar sem hann mun afplána eftirstöðvar dóms síns.

Braut ítrekað af sér hér á landi

Scobie var handtekinn við komu til landsins þann 16. júní í fyrra með umtalsvert magn barnakláms á tölvubúnaði sem hann hafði meðferðis.  Farmiði hans til Íslands var greiddur með illa fengnu greiðslukortanúmeri en fjársvik af ferðaþjónustuaðilum eru þau brot sem Scobie er helst þekktur fyrir.

Hér sést Scobie í öryggismyndavél verslunarinnar iSímans þar sem hann reyndi að sækja vörur fyrir rúma hálfa milljón.
Hann var látinn laus úr gæsluvarðhaldi þann 27. júlí en áfram látinn sæta farbanni á meðan rannsókn þessara brota stóð yfir. Scobie varð uppvís að fjölda fjársvika með fölsuðum greiðslukortum á meðan hann gekk laus á Íslandi. Meðal annars var hann handtekinn í verslun iSímans í Skipholti í Reykjavík þann 6. ágúst þar sem hann reyndi að sækja vörur fyrir alls 516 þúsund krónur.

„Ég leiddi aldrei hugann að afleiðingunum, að fólk myndi tapa peningum,“ segir Scobie í samtali við The Evening Telegraph um eðli brota sinna. „Eftir á óskaði ég þess að ég hefði ekki gert þetta. Ég vil hætta þessu. Ég hef fengið nóg af lögreglustöðvum og fangelsum, ég ræð ekki við það lengur.“

Sjá einnig: Grunaður um ítrekuð fjársvik og dreifingu barnakláms

„Ekkert eins og í Catch Me If You Can“

Scobie er fæddur árið 1993 og vakti sem fyrr segir athygli fjölmiðla fyrir efnahagsbrot í Bretlandi. Hann fékk árið 2013 sextán mánaða dóm í Bretlandi fyrir að svíkja út sjötíu þúsund pund, eða rúmlega fjórtán milljónir íslenskra króna, af ferðaþjónustuaðilum.  

Í fréttum breskra miðla um málið segir að í dómi sé Scobie lýst sem tæknisérfræðingi sem nýti sér tölvukunnáttu sína til að svíkja út fé. Þá er talað um Scobie sem „Catch me if you can-glæpamanninn“ í breskum miðlum og honum líkt við þekkta svikahrappinn Frank Abagnale Jr., sem Leonardo DiCaprio lék í bíómyndinni Catch Me If You Can.

Afbrot Scobie árið 2013 vöktu athygli í breskum fjölmiðlum.
„Ég hef mjög gaman af flugvélum og því að ferðast, en þetta var ekkert eins og í Catch Me If You Can,“ segir Scobie. „Þetta snerist bara um spennuna við það að vera í fluginu. Ég var nokkurn veginn bara í því að fara beint úr einu flugi í annað. Að bóka flugferðirnar var bara eitthvað sem ég gerði og mundi svo ekki eftir.“

Scobie, sem er ofvirkur og með Asberger-heilkenni, játaði öll brot sín skýlaust fyrir dómi á Íslandi. Hann segist í viðtalinu hafa komist yfir þær þúsundir ljósmynda og hundruð myndskeiða sem sýna börn á klámfenginn hátt þegar hann var að forvitnast um „myrku hliðar internetsins.“

„Ég er alls ekki barnaníðingur,“ segir Scobie. „Ég ákvað að kíkja hvað væri á spjallþræði sem ég fann á netinu og þegar ég áttaði mig á því hvað var á myndunum reyndi ég að eyða þeim. Ég tilkynnti efnið til eftirlitsstofnana. Ég hélt að ég hefði eytt þeim en lögreglan fann leifar af þeim.“

Scobie er nú kominn til heimaborgar sinnar, Dundee í Skotlandi. Þar á hann að njóta sálfræðiaðstoðar til að koma í veg fyrir að hann brjóti af sér á ný. Hann segir að lyf sem hann fékk hér á Íslandi hafi hjálpað honum og vonast til þess að geta haldið áfram að taka þau í Bretlandi.


Tengdar fréttir

Alþjóðlegi svikarinn í gæsluvarðhaldi

Breti sem grunaður er um fjársvik hér á landi með kreditkortum hefur verið úrskurðaður í gæslu- varðhald. Hefur áður komið við sögu lögreglu í Bretlandi. Var dæmdur þar fyrir að svíkja út 70 þúsund pund eða fjórtán milljónir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×