Viðskipti innlent

Nýju vélarnar vísir á góða tíma í innanlandsfluginu

Kristján Már Unnarsson skrifar
Flugvélin sem tekur við keflinu sem flaggskip innanlandsflota Flugfélags Íslands lenti í Reykjavík í fyrsta sinn í dag. Flugfélagsmenn sjá sóknarfæri með endurnýjun flugflotans.

Eftir að hafa notað fimmtíu sæta Fokker-vélar í hálfa öld var loks komið að því að Flugfélag Íslands kynnti stærri og hraðfleygari arftaka til sögunnar, kanadísku vélina Bombardier Q400. Hún flaug beint frá Englandi og renndi sér fyrst í hratt sýningarflug yfir Reykjavíkurflugvelli en svo voru hjólin sett niður og búist til lendingar.

Flugfélagið fær þrjár slíkar á næstu vikum sem leysa munu af fimm Fokkera, enda verða þessar með allt að 76 farþegasæti um borð og fljúga 30 prósentum hraðar en eldri vélar; ná 620 kílómetra hraða. Slökkvilið flugvallarins bauð upp á heiðursmóttöku, með því að mynda vatnsboga yfir vélinni, og starfsfólk Flugfélagsins og Icelandair fjölmennti til að fagna tímamótunum. 

„Þetta er stór stund hjá okkur hjá Flugfélaginu og fyrir innanlandssamgöngur í heild sinni,” sagði Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands.

„Þetta er mesta fjárfesting sem félagið hefur farið í gegnum á undanförnum tuttugu árum og vísir á góða tíma framundan og mikil tækfæri í þessari fjárfestingu.”

Á flugvellinum höfðu menn orð á því hversu hljóðlát vélin væri, þeirra á meðal ráðherra ferðamála, Ragnheiður Elín Árnadóttir, sem kvaðst varla hafa heyrt í henni þegar hún kom. 

„Ég held að þetta geti bara orðið til þess að setja allar deilur um Reykjavíkurflugvöll niður. Það mun enginn heyra í þessum vélum,” sagði ráðherrann og uppskar hlátur viðstaddra við athöfn í flugskýli Flugfélagsins eftir lendingu.

Stóra systir, Q400, í loftinu, en litla systir, Q200, við Flugfélagsafgreiðsluna í dag. Sú stærri tekur 72-76 farþega en sú minni 37 farþega.Vísir/Vilhelm.
Nýjan vélin gefur Flugfélaginu færi á að bæta við tveimur nýjum áfangastöðum erlendis, Aberdeen í Skotlandi og Syðri-Straumfirði á Grænlandi.

Farþegum innanlands fjölgaði einnig í fyrra: „Og töluverð aukning það sem af er þessu ári,” segir Árni, sem kveðst sjá mikil tækifæri á innanlandsmarkaði, sérstaklega í fjölgun erlendra ferðamanna, sem nýti sér innanlandsflugið í vaxandi mæli. 

Eftir lendingu var rætt við flugstjórann, Jónas Jónasson, í þættinum Ísland í dag.


Tengdar fréttir

Hefja flug til Aberdeen

Icelandair fer í samstarf við Flugfélag Íslands um áætlunarflug til Skotlands

Helmingi stærri vél leysir af Fokkerinn

Hálfrar aldar þjónustu Fokkeranna við landsmenn lýkur senn. Flugfélag Íslands hefur ákveðið að skipta þeim út fyrir helmingi stærri vélar, Bombardier Q400, sem taka 74 farþega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×