Innlent

Inflúensa herjar á landann: Mikið álag á Landspítala og fjöldi starfsmanna rúmliggjandi

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Nokkuð er um veikindi meðal landsmanna þessa dagana.
Nokkuð er um veikindi meðal landsmanna þessa dagana. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Mikið er um veikindi meðal starfsmanna Landspítalans þessa dagana, líkt og á öðrum vinnustöðum landsins. Þrjár tegundir inflúensu hrjá landann og hefur spítalinn vart haft undan við að sinna öllum þeim sem leita á bráðamóttökuna.

„Það ganga svona faraldrar yfir starfsfólkið líka enda margir starfsmenn sem komast í snertingu við sjúklingana. Þannig að þetta er alveg áskorun að takast á við en við köllum út aukavaktir og reynum að bregðast við,” segir Ásta Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Landspítalans.

Álagið hefur verið svo mikið að fólki hefur verið ráðlagt að leita frekar á heilsugæslu en bráðamóttöku. Ásta segir álagið enn mikið, en að viðeigandi ráðstafanir hafi verið gerðar, enda um árlegan viðburð að ræða.  

„Flensan er árviss viðburður og til að undirbúa það og gera okkur í stakk búin til að taka á móti sjúklingum sem koma á hverjum vetri þá reynum við að leggja mikla áherslu á bólusetningar starfsmanna. Við náðum mjög góðum árangri með það í ár en þó eru aðeins tveir þriðju starfsmanna bólusettir, en þó flestir sem eru í framlínunni. Við leggjum líka mikla áherslu á handþvotta því það er góð sýkingavörn og síðan að fólk sé heima þegar það er lasið. Þannig reynum við að hámarka þann fjölda þeirra sem eru tilbúnir að taka á móti sjúklingum þegar flensan leggst yfir.”

Hún segir mikið álag á hvern starfsmann þessa dagana. „Þetta er álag, og eins og fram hefur komið þá er álag á Landspítalann, og þess vegna hvetjum við að fólk til að leita til heilsugæslunnar eða á læknavaktina heldur en að koma á spítalann,” segir Ásta.

Virkni inflúensunnar hefur aukist mikið á síðastliðnum vikum en á sjöttu viku ársins voru alls fjörutíu manns með staðfesta greiningu á inflúensu, samkvæmt upplýsingum frá landlæknisembættinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×