Leikjavísir

Kjörinn leikur fyrir börnin

Samúel Karl Ólason skrifar
Leikurinn fjallar um sex kvikmyndir Marvel.
Leikurinn fjallar um sex kvikmyndir Marvel. Mynd/LEGO
Leikurinn LEGO Marvel´s Avengers er skemmtilegur hraður og fyndinn. Hann fjallar um hinar gífurlegu vinsælu teiknimyndasöguhetjur Marvel og byggir á kvikmyndum um þær. Hægt er að spila leikinn einn eða með vini og er alltaf nóg um að vera.

Í leiknum er hægt að spila sem einhver af fjölmörgum hetjum Marvel, í opnum heimi, sem að mestu gengur út á að lumbra á vondum körlum, brjóta allt og byggja eitthvað sem hægt er að nota. Hann fjallar um söguþráð sex kvikmynda Marvel en á mjög sérstakan hátt.

Inn á milli eru mörg klassísk LEGO grínatriði og er leikurinn jafn skemmtilegur fyrir bæði börn og fullorðna.

LMA gerist að mestu í opnum heimi þar sem hægt er að leysa fjölmargar þrautir sem hannaðar eru fyrir ofurhetjurnar. Meðal annars þarf að bjarga Stan Lee úr hættu og safna legokubbum.

Þegar kemur að göllum leiksins eru þeir nokkrir. Oft á tíðum er erfitt að átta sig á því hvað það er sem þarf að gera, sérstaklega í byrjun leiksins. Svarið leynist þó oftar en ekki í því að skemma fleiri hluti þangað til hægt er að byggja eitthvað.

Þá er stundum svo mikið um að vera, að erfitt er að sjá hvað er að gerast á skjánum og auðvelt er að lenda í því að hlaupa fram af einhverjum sem ekki mátti hlaupa fram af.

Þó bardagar feli að mestu í sér að ýta eins oft og hægt er á kassanna þá eru allar hetjurnar einnig með sérstaka árás. Sérstakar samblöndur af hetjum mynda líka sérstakar árásir. Þór getur lamið á skjöld Captain America og myndað stóra höggbylgju og svo framvegis.

Kvikmyndir LEGO og tölvuleikir sem fyrirtækið hefur gefið út undanfarin ár hafa notið mikilla vinsælda fyrir léttan húmor sem finna má nóg af í LMA. Sem gerir leikinn líka kjörinn fyrir foreldra að spila með börnum sínum. Ekki er víst hvor mun skemmta sér betur.


Tengdar fréttir

Biðin eftir góðum handboltaleik heldur áfram

Framleiðendurnir Handball 16 fá þó aukastig fyrir viðleitnina, en markaðurinn fyrir handboltaleiki er væntanlega ekki beysinn. Íslenskir leikmenn eru á sínum stað.

Haldið í hefðir Homeworld

Homeworld: Deserts of Kharak, tekst að vera nýstárlegur og í senn halda í uppruna sinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×