Enski boltinn

Stoke lyfti sér upp fyrir Liverpool | Markalaust á Vicarage road

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Leikmenn Stoke fagna fyrra marki Arnautovic í dag.
Leikmenn Stoke fagna fyrra marki Arnautovic í dag. Vísir/getty
Stoke City lyfti sér upp fyrir Liverpool í 9. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 2-1 sigri á botnlið Aston Villa í dag en Liverpool á þó leik til góða.

Það tók heimamenn í Stoke langan tíma að brjóta ísinn en austurríski landsliðsmaðurinn Marko Arnautovic skoraði loksins fyrsta mark leiksins á 51. mínútu af vítapunktinum.

Arnautovic var aftur á ferðinni stuttu síðar eftir góðan undirbúning Xherdan Shaqiri og virtust leikmenn Aston Villa einfaldlega gefast upp við það.

Þeir fengu þó líflínu tíu mínútum fyrir leikslok þegar Leonardo Bacuna minnkaði muninn eftir sendingu frá Rudy Gestede en lengra komust gestirnir ekki.

Á Vicarage Road var nýliðaslagur af bestu gerð þegar Watford tók á móti Bournemouth en ekkert mark kom í leikinn og þurftu liðin því að sætta sig við jafntefli.

Öll úrslit dagsins:

Stoke City 2-1 Aston Villa

Watford 0-0 Bournemouth

Leicester City 1-0 Norwich

Southampton 1-2 Chelsea




Fleiri fréttir

Sjá meira


×