Lífið

Ágústa Eva: „Aldrei skammast mín jafn mikið og nú“

Samúel Karl Ólason og Jóhann Óli Eiðsson skrifa
„Fyndið að gefa þjóðfélagshóp alla þolinmæði og tolerans í heimi fyrir dónaskap og ósmekklegheit bara af því að þær eru kvk og femínistar.“ Þetta skrifar Ágústa Eva Erlendsdóttir, á Facebook. Hún gekk út úr þættinum Vikan með Gísla Marteini í gær þegar Reykjavíkurdætur voru að flytja lag sitt Ógeðsleg.

Þeir Logi Bergmann og Rúnar Freyr Gíslason, stjórnendur Bakarísins á Bylgjunni, hringdu í Ágústu Evu í morgun og heyrðu í henni hljóðið. Spurðu þeir hana meðal annars út í það hvort það væri ekki nokkuð undarlegt að manneskjan á bak við Silvíu Nótt væri að kvarta yfir sjokkerandi atriðum.

„Ég var stundum hissa hvað fólk lét yfir sig ganga þegar ég var Silvía Nótt en ég fór allavega ekki úr að neðan og var á píkunni fyrir framan alþjóð,“ sagði Ágústa. „Það kannski sást ekki í sjónvarpinu að ein fór úr að neðan á meðan önnur var að skaka sér á gestum með gervilim framan í þeim. Jóhannes Haukur var bara „hey, þetta er ekki í lagi. Börnin mín eru að horfa.““

Sjá einnig: Ágústu Evu ofbauð framkoma Reykjavíkurdætra

Hún bætti því við að hún að þetta væri ábyggilega gjörningur en hún hefði engan áhuga á að láta þetta ganga yfir sig bara þar sem þetta var list. „Það voru börn að horfa og þetta var ekki barnaefni, og ekki heldur fullorðinsefni ef út í það er farið. Ef þér er misboðið þá áttu að láta í þér heyra. Þú átt ekki að sitja undir einhverju sem lætur þér líða illa bara út af því að það flokkast sem list.“

„Skamm RUV og stelpur fyrir að koma með þetta rusl í fjölskyldudagskrá á ríkissjónvarpi. Oft hef ég fengið kjánahroll en aldrei skammast mín jafn mikið og nú,“ skrifar hún síðan einnig í Facebook-færslu sinni frá því í nótt.

Þá vekur Ágústa Eva athygli á texta lagsins og skorar á fólk að lesa hann. Hægt er að lesa textann við lagið Ógeðsleg hér fyrir neðan en þar er einnig hægt að hlusta á viðtal Loga og Rúnars við Ágústu.

Fyndið að gefa þjóðfélagshóp alla þolinmæði pg tolerans í heimi fyrir dónaskap og ósmekklegheit bara afþví að þær eru...

Posted by Erlendsdóttir Ágústa Eva on Friday, February 26, 2016
Sóli Hólm hélt að Ágústa Eva ætlaði að dansa með.
Atriði Reykjavíkurdætra má sjá hér að neðan og þar að neðan má sjá texta lagsins.

Viðlag: Ég er svo nett að ég er ógeðslega nett x8

Á ég að hlaða?

Ég er pæja og í því að rappa

Er ég sú færasta

Skipti’ um gæja eins og túrtappa

ég á 7 kærasta

værukærust á hælunum

eins og Miley Cyrus á nærunum

skipti’um brók fæ mér smók og breytist í

smóóóók Blær-rasta

tek rappara’ eins og grappa skot í bland við fernet branca

Sparka niður hurðinni’ eins og Blaz ég þarf ekki’ að banka

Bankastjórar borga mér fyrir það eitt að vera til

Ban ki Moon, Búinn að bangann  Banga það sem ég vil.

Eyjó,

Ég er þéttar’en motherfokking fastar fléttur

hættulegr’en Bent og reyki cohibu sígarettur

réttu mér léttan latte og leiktu með mér spenntur

því ég er svo tíð á þínu laki að ég er eins og túrblettur

dettur ekki í hug að farað hverf’inní móðu

ég er sjúk kona, súkari en Bófar í Tófu

ofar stærri betri lofa Íslandi of góðu 

rappar á þriðju hæð – haha

ég er á fjórðu

Mc Furiosu prósar gjósa dissi yfir brósa

óljósu prósu brósar augljóst úti frjósa

bita fyrir bita finnur leka svita

Þessi upprisa slysa ætt'að láta þig vita

að ég eyk í þér blóðhita

með rímum mínum hraðar en þú út á jaðarenn

í glasi mínu er skáldskaparmjöðurenn

 - næssss-

ég rúbín, línur mínar dýpri og mýkri en satín

kemur þú hér villisvín með rímur þínar linari en gelatín

tín tín tínast línur þínar þar – bölvaðar

- ég er víti til varnaðar

Þetta er spurning um stæla

attitude en lang flestir fá þetta fríka út og skæla

absaloute

ég er komin til að bræða

ekkert til að ræða

Ey yo fam hvað er að frétta?

sælar

ég er engri lík 

tík

ég er tófa bitch motherfokkers þora ekki að prófa

lögga hrædd við bófa

sóa ekki tíma í þig

flaskan mín alltaf tóm

við tvö alone

og ég er svo nett að þú kemst í zone

shlengiddídeng er þessi sheng’að reyna mig að flenga?

fuck boys

reyna að fokka meira

nope nois

ég ætla að chilla og fokka less

haha

stay young stay blessed, 

yes

Nettari en Nói sem flúði frá flóði

Flý ekki neitt og syndga með flói

Tvíburi tælandi taktana við

Tunguna tætandi með þér i lið

Ríf í járnin en mér biður við 

ef þu ætlar að þykjast hata mig 

Svo fyllum bílanaf bensín

Og skottið af slots

Two nipples up n dont give a fuck

SO WHAT? Ég owna þetta ittybittytittycommitty, No pitty! 

Oscar Wilde myndi shje´nga mig er svo helvíti witty.

Galdrandi ólikum línum á varhugaverðum timum.

í no djóki ég er Alfreð Flóki.

Allsherjargyðja, himnaríki rétt neðan um mig miðja

Þröng, nóttin er löng

Ef þú höndlar þessa dínamík.

sjúgðu á mér snípinn tík 

kaffið er kalt en það heldur mér gangandi

röltandi um göturnar með g&t blandið mitt

niðdimm grimm nótt en ég er ennþá vakandi

hendi bara í aðra já það er ferskt og brakandi.

í slopp og engum buxum ætlar þú að reyna að stæla mig,

haaa, þá mun ég fokking bræða þig.

því ég er feminista nasisti

brjótandi hjörtu

bangandi systir

skjálfandi á beinum því við erum hér

óstöðvandi hiti þu mátt fokka þér!

spegill spegill hermd þú mér, hver á landi nettust er?

Steina j - þarft'að spyrja?

Mínar rímur á rípít þótt ég hafi verið að byrja

skeiti ekki, breiki ekki og kunni að gyrða 

með feitasta spittið og ofan á bítið ég smyr það

Nokkuð sama hvort að öðrum finnist ég góð

og held áfram að rappa því ÉG veit érr með illað flóww

tjillaði og glotti á meðan kylfan hlóð

og hélt svo áfram að ryðja mér leið um þessa þyrnirgrónu slóð

Tófan er mætt á túttunum,

er ein af dúkkunum.

Ísköld og svalandi

með blæti fyrir lauslæti

mæti á svæðið, farin eftir korter

því ég er alltof feit fyrir etta shit 

motherfokker

XXX - kalla þá pjakka

teymi þá á eftir mér í bandi eins og rakka..

Sál mín er svört, 

svört og sykurlaus-

Ég kaus- að vera óttalaus

Kostar eitthvað fimm-kúlur borga ég fimmtán.

Vilji ég eitthvað næ ég að fá´ða 

Því ég er mella og ég motherfokkin má´ða

Ég er beinbarabúmm

Flýg um miðbæ á hjólhesti fúmm…

Brenni baróna’á bálkesti púmm

Himnadansari hinn mesti

Kasta Þórshamr’í jötnasmetti

Leik mér helst við villiketti

bý í heitri laug við helli’ á kletti

Tek ekki þátt í smáu spalli

Ég er villikon’á fjalli

Hlýð’aðeins náttúrunnar kalli

stilli mér ekki upp á neinum stalli

Skríð ekki fyrir neysluhyggjusvalli

þarf ekk’að monta mig

þarf ekki flottan bíl

þarf ekki demanta og peninga og gotterí

ég veit ég er heit ég þarf ekk’að state’aða

og ég neita að segja frá þeim heitu sem ég deita

í eilífri leit’að viðurkenningu

meik’ekki þessa lame menningu

þarf ekk’að segja hversu flott ég er

því það vita það allir hvort eð er

ég er svo fkn heit að fólk ruglast á mér og sólinni 

shine’a svo bright að skýjin geta ekki fkn skyggt á mig

Vatnajökull gæti ekki kælt þetta bodííí

er svo fokkin sterk að ég kölluð tsunami (killem)

meinstrím shitt með lokuð augun / jordan

Þið munu öll fatta þetta seinna / einstein (næs i rassinn)

A. N. N. A. fokkin Tara, þyngdaraflið getur ekki haldið þessum sjarmaaaa

Hey (hey) textinn er ekki í flæði 

hey (hey) ég er ekki að ríma (síma)

hey (hey) ég tala svo óskýrt

Mér er drull um hvað þú heldur að þú vitir

Þett’er ekki fyrir tussufokkera 

blauta rúnkara

Hef rekið mig of oft á besserwissera sem hald’að allir vilja vita hvað þeim finnst

Fokk it

Ég ætl’ekki að segja sorrí (æj sorrí)

Ekki tala við mig. Ekki horfa á mig. Ekki hugsa um mig






Fleiri fréttir

Sjá meira


×