Formúla 1

Nýtt fyrirkomulag tímatöku í Formúlu 1

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Breyting á tímatökufyrirkomulaginu er yfirvofandi í Formúlu 1. Breytingin felur í sér útsláttarfyrirkomulag með nýrri nálgun.

Hægasti bíllinn á 90 sekúndna fresti dettur út í nýja kerfinu, þangað til uppröðun á ráslínunni verður klár.

Bernie Ecclestone hefur nú sagt að breytingin sem átti að taka gildi strax í fyrstu tímatökunni, í Ástralíu, muni tefjast. Ecclestone telur líklegt að nýja fyrirkomulagið verði kynnt til leiks um það bil sem spænski kappaksturinn fer fram, sem væri þá um miðjan maí.

Ástæðan fyrir þessari töf er sú að forritun nýja tímatökubúnaðarins er tímafrekari en ætlað var. Eldra fyrirkomulagið verður því við líði þangað til.

Ecclestone hefur þegar viðurkennt að nýja fyrirkomulagið sé ekki alveg það sem hann vildi að það yrði. Hann vildi einblína meira á að hrista upp í röðinni og blanda hraðari ökumönnum inn á milli hægari ökumanna.

„Þetta er ekki það sem ég vildi. Allt sem ég vildi var að blanda saman hröðum og hægum ökumönnum. Ég vildi ekki að hraðasti ökumaðurinn yrði fremstur á ráslínu því þannig hverfur hann bara í keppninni, af hverju ætti hann að vera hægur í keppninni ef hann var hraður í tímatökunni,“ sagði Ecclestone.


Tengdar fréttir

Vettel fljótastur á últra mjúkum dekkjum

Sebastian Vettel endaði annan dag æfinganna á brautinni í Barselóna hraðastur á Ferrari bílnum. Undir bílnum á hraðasta hring voru nýju últra mjúku dekkin.

Hulkenberg fljótastur en Sainz ók lengst

Þriðji æfingadagurinn fyrir Formúlu 1 tímabilið fór fram í dag. Nico Hulkenberg var fljótastur á Force India bílnum. Carlos Sainz fór lengst í Toro Rosso bílnum.

Frumsýningar í Formúlu 1

Formúlu 1 tímabilið hefst 18. mars næstkomandi, með föstudagsæfingum í Ástralíu. Fyrst fara fram æfingar og frumsýningar liðanna á nýjum bílum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×