Glamour

Óskarinn 2016: Best klæddu konurnar

Ritstjórn skrifar
Glamour/getty
Rauði dregillinn á Óskarsverðlaununum var sérstaklega flottur í þetta sinn. Grænn, hvítur og glimmer var áberandi.

Kjólarnir voru með mjóum hlýrum, flegnir og pilsin bein og oft með slóða. Greinileg áhrif frá tíunda áratugnum svo sem choker hálsmen, bein hálsmál og mjóu hlýrarnir. 

Ritstjórn Glamour var sammála um að Oliviurnar Munn og Wilde hafi staðið uppúr ásamt Rooney Mara og Saoirse Ronan. 

Olivia Wilde æðisleg í Valentino. Og þetta hálsmen!
Saoirse Ronan í sérhönnuðum Calvin Klein
Olivia Munn í Stella McCartney. Einn af uppáhalds.
Lady Gaga í hvítum samfesting frá Brandon Maxwell, fyrrum stílisanum hennar sem stofnaði eigin tískumerki.
Rooney Mara í SJÚKUM Givenchy kjól
Rachel McAdams í August Getty Atelier
Julianne Moore í Chanel
Margot Robbie í Tom Ford





×