Sport

Geggjuð stuttmynd um Conor McGregor

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Conor McGregor.
Conor McGregor. vísir/getty
Sports Illustrated fjallar mikið um Conor McGregor þessa dagana og hefur nú birt frábæra stuttmynd um Írann.

McGregor var forsíðudrengur tímaritsins í síðustu viku og tímaritið lagði mikið í umfjöllun sína um Írann sem er að leggja íþróttaheiminn að fótum sér.

Þeir fóru til Írlands og eyddu nokkrum dögum með írska strigakjaftinum. Fylgdust með honum æfa með Gunnari Nelson og fleirum.

Í innslaginu er spjallað við Conor, þjálfarann hans, John Kavanagh, forseta UFC, Dana White, og íþróttafréttamann Sports Illustrated.

Conor stígur inn í búrið gegn Nate Diaz um næstu helgi og bardaginn verður í beinni á Stöð 2 Sport.

Sjá má myndina skemmtilegu hér.

MMA

Tengdar fréttir

Conor mætir Nate Diaz

Írinn svíkur engan. Fer upp um tvo þyngdarflokka til þess að geta keppt 5. mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×