Innlent

Hótaði að kveikja í sér við verkefnamiðstöð fyrir hælisleitendur

Birgir Olgeirsson skrifar
Lögreglan var með mikinn viðbúnað vegna mannsins sem lét ekki verða af hótunum sínum.
Lögreglan var með mikinn viðbúnað vegna mannsins sem lét ekki verða af hótunum sínum. Vísir
Hælisleitandi hótaði að kveikja í sér við verkefnamiðstöð fyrir hælisleitendur að Arnarholti á Kjalarnesi í kvöld. Greint var fyrst frá málinu á vef Morgunblaðsins.  Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var með mikinn viðbúnað vegna þess og voru kallaðir til sjúkra- og slökkvibílar.

Valgarður Valgarðsson, varðstjóri lögreglustöðvar 4 á Vínlandsleið, segir í samtali við Vísi að maðurinn hafi ekki látið verða af hótunum sínum og er aðgerðum lögreglu lokið.

Valgarður gat ekki frekari upplýsingar veitt um málið að svo stöddu en framhald þess sé í höndum Útlendingastofnunar.

Uppfært klukkan 22:40:

Lögreglan sendi eftirfarandi tilkynningu vegna málsins:

Betur fór en á horfðist þegar lögreglan var kölluð að Arnarholti á Kjalarnesi á áttunda tímanum í kvöld, en þar var tilkynnt um mann sem hótaði að bera eld að sjálfum sér. Sá reyndist vera hælisleitandi, en viðkomandi var rólegur þegar lögreglan kom á vettvang og hafði ekki borið eld að sér eða húsnæðinu í Arnarholti. Ástæðan fyrir hótun mannsins mun vera óánægja hans með afgreiðslu mála hjá yfirvöldum, en þau hafa mál hans til meðferðar. Maðurinn var færður af staðnum og til dvalar annars staðar, en hann er undir eftirliti starfsmanna Útlendingastofnunar.


Lögreglan var með mikinn viðbúnað vegna málsins, en tilkynningin um hótunina barst kl. 19.40. Málið var tekið mjög alvarlega, en auk lögreglu fór slökkviliðið á vettvang. Aðgerðum var lokið rétt fyrir klukkan níu í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×