Sport

Gunnar mætir rússneskum rotara í Rotterdam

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Gunnar Nelson mætir Albert Tumenov í Rotterdam.
Gunnar Nelson mætir Albert Tumenov í Rotterdam. vísir/getty
Vísir getur staðfest að næsti bardagi Gunnars Nelson fer fram í Rotterdam í Hollandi þann 8. maí næstkomandi.

Þá mun Gunnar berjast gegn Rússanum Albert Tumenov. Rússinn er í 15. sæti á styrkleikalista UFC í veltivigtinni og tók það sæti af Gunnari sem er utan listans í augnablikinu. Tumenov er mikill rotari.

Tumenov er 24 ára gamall og gengur undir viðurnefninu Einstein. Hann er frá borginni Nalchik í Rússlandi en æfir í New Jersey í Bandaríkjunum.

Tumenov á 19 bardaga að baki í MMA. Hann hefur unnið 17 og aðeins tapað tveimur. Ellefu sigrar komu eftir rothögg en sex eftir dómaraúrskurð. Bæði töpin komu eftir dómaraúrskurð.

Tumenov vann Lorenz Larkin í síðasta bardaga sínum.vísir/getty
Fyrsta UFC-kvöldið í Hollandi

Hann gerði fjögurra ára samning við UFC í desember árið 2013. Hann á sex bardaga að baki í UFC. Rússinn tapaði fyrsta bardaganum en hefur unnið síðustu fimm. Þrír af sigrunum komu eftir rothögg enda er Tumenov afar sterkur boxari, eins og áður segir, og einnig með gott sparkbox.

Hann kallaði eftir bardaga við Steven „Wonderboy“ Thompson á dögunum. Sagði að þeir væru bestu standandi bardagamennirnir í vigtinni. Honum varð ekki að ósk sinni því hann þarf að glíma við Gunna næst.

Síðasti bardagi Tumenov var þann 2. janúar síðastliðinn. Þá vann hann Lorenz Larkin en tveir dómarar af þremur dæmdu Tumenov sigur í þeim bardaga.

Þetta verður í fyrst sinn sem UFC-kvöld er haldið í Hollandi. Ekki liggur fyrir númer hvað bardagi þeirra verður á kvöldinu en þetta verður einn af aðalbardögum kvöldsins.

Gunnar keppti síðast þann 12. desember er hann tapaði fyrir Brasilíumanninum Demian Maia. Eins og áður segir er hann sæti aftar en Tumenov en sigur á Rússanum mun fleyta Gunnari aftur upp styrkleikalistann.

Uppfært:

UFC hefur staðfest frétt Vísis eins og sjá má hér að neðan.

MMA

Tengdar fréttir

Gunnar enn í fimmtánda sæti

Gunnar Nelson er í sama sæti og síðast á styrkleikalista UFC en færist þó niður um eitt sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×