Innlent

Árni Páll: „Fólk treystir ekki þeim sem henda einum fyrir ljónin og hlaupa burt“

Heimir Már Pétursson skrifar
Formaður Samfylkingarinnar segir að flokkurinn hafi gert fjölmörg mistök allt frá því að hann fór í ríkisstjórn árið 2007, án þess að hafa gengist við þeim eða gert þau upp í samskiptum við þjóðina. Hann kallar eftir ítarlegu samtali innan flokksins áður en hann ákveður hvort hann bjóði sig fram til formennsku.

Eftir að framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar ákvað í gær að flýta landsfundi og formannskjöri biðu margir viðbragða formannsins, sem í dag sendi öllum félögum í flokknum bréf.

Þar segir hann að það skipti í sjálfu sér engu máli hver verði formaður ef Samfylkingin horfist ekki í augu við sjálfa sig, ekki verði tekið á rót vandans með mannfórn, án heiðarlegrar umræðu um orsakir þessarar stöðu.

Flokkurinn geti verið stoltur af fjölmörgu í verkum sínum í ríkisstjórn eftir hrun. En þrátt það ekki notið góðra verka í síðustu Alþingiskosningum.

„Og þegar svo er verða menn að horfa á hvað það er nákvæmlega sem er að koma í veg fyrir það. Ég held að það sé vegna þess að það séu ákveðnir þættir sem okkur tókst ekki vel til með,“ segir Árni Páll í viðtali við fréttastofu.

Í bréfinu segir hann að flokkurinn búi við alvarlegan skort á trúverðugleika, sem komi í veg fyrir að fólk styðji flokkinn.

„Við verðum að viðurkenna það og takast á við það. Öll, ekki bara sum,“ segir formaðurinn orðrétt í bréfinu.

Þrátt fyrir góð verk hafi flokkurinn gert ýmis mistök allt frá því hann gekk í ríkisstjórn árið 2007. Þá hafi hann gengið inn í valdakerfi gömlu flokkanna, án þess að gera kröfu um grundvallarbreytingar.

En þú sem leiðtogi flokksins, hlýtur þú ekki að bera ábyrgð á einhverjum þessara mistaka?

„Ó jú. Ég sat líka í ríkisstjórn og ber ábyrgð á því sem þar gerðist,“ segir Árni Páll.

Í bréfinu nefnir hann meðal annars þessi mistök:

Flokkurinn hafi misst náið samband sitt við verkalýðshreyfinguna og talsamband við atvinnulífið.

Stutt samning um Icesave sem ekki hafi varið ítrustu hagsmuni þjóðarinnar og mælt gegn þjóðaratkvæðagreiðslu um samningana.

Byggt aðildarumsókn að ESB á flóknu baktjaldasamkomulagi í stað þess að fá skýrt umboð frá þjóðinni til að fara í aðildarviðræður.

Og þegar fólk var að drukkna í skuldafeni hafi flokkurinn í of ríkum mæli tekið að sér að útskýra hvers vegna fólk ætti að borga skuldir sínar. í stað þess að taka stöðu með fólki gegn fjármálakerfi.

„Ég er heldur ekki að kalla eftir því að við finnum sökudólg. Ég er að kalla eftir því að við öxlum félagslega ábyrgð,“ segir formaðurinn í samtali við fréttamann.

„Ég held að fólk treysti ekki fólki sem kasti einum fyrir ljónin, hlaupi svo burt og haldi að það sé hólpið. Við gerðum mistök, við skiljum það. Við ætlum að passa að þau endurtaki sig ekki,“ segir Árni Páll Árnason.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×