Íslenski boltinn

Arnþór Ari framlengdi við Blika

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Arnþór Ari í leik gegn FH.
Arnþór Ari í leik gegn FH. vísir/anton
Arnþór Ari Atlason er ekkert á förum úr Kópavoginum því hann er búinn að framlengja við Blika.

Arnþór Ari er búinn að skrifa undir nýjan þriggja ára samning við Kópavogsliðið en hann kom til félagsins frá Þrótti haustið 2014.

Hann spilaði vel fyrir Blika í fyrra er hann lék í 21 leik í Pepsi-deildinni.

Arnþór Ari hefur spilað þrjá leiki með yngri landsliðum Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×