Innlent

Kári Stef við Bjarna: „Þú ert ekki einu sinni sammála sjálfum þér“

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Kári Stefánsson vill að meira fé verði varið í heilbrigðiskerfið.
Kári Stefánsson vill að meira fé verði varið í heilbrigðiskerfið. Vísir/GVA
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og forsprakki undirskriftasöfnunar til stuðnings kröfunnar um endurreisn heilbrigðiskerfisins, segir að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hafi persónulega séð til þess að viðbótarfjármagn til þess að tryggja rekstur Landspítalans hafi verið skorið niður. Þannig hafi hann vegið að kjarna íslensks heilbrigðiskerfis.

Þetta kemur fram í aðsendri grein Kára sem birtist í Fréttablaðinu í dag. Tilefni greinarinnar er viðtal Bjarna Benediktssonar við RÚV þar sem fjármálaráðherra sagðist vera sammála Kára um að gera þyfti betur í heilbrigðiskerfinu.

Sjá einnig: Kári vill að ríkissjóður borgi allan kostnaðinn

Í greininni segir Kári sögu af því þegar verið var að ganga frá endalegri útgáfu af fjárlagafrumvarpinu rétt fyrir síðustu jól. Reynt hafi verið að tryggja að Landspítalinn fengi 2,5 milljarða króna viðbótarframlag til þess að tryggja að hægt væri að reka hann á árinu 2016 á sömu forsendum og á árinu 2015. Bjarni hafi hins vegar komið í veg fyrir það.

„Þegar þetta kom inn á borð til Bjarna sá hann persónulega til þess að viðbótarfjármagnið til spítalans varð ekki nema 1,25 milljarðar og kvað ríkið ekki hafa efni á meiru,“ segir Kári. Með þessu hafi fjármálaráðherra einn og óstuddur vegið að kjarna íslensks heilbrigðiskerfis.

Sjá einnig: Kári Stefánsson setur af stað undirskriftasöfnun fyrir endurreisn heilbrigðiskerfisins

Kári segir því að ómögulegt geti verið að fjármálaráðherra sé sammála sér um heilbrigðismál eftir að hafa staðið að þessum niðurskurði, nema hann sé þá einfaldlega ósammála sjálfum sér.

Lesa má greinina í heild með því að smella á hana hér að neðan.


Tengdar fréttir

Kári vill að ríkissjóður borgi allan kostnaðinn

Kári Stefánsson segir að sú hugmynd að menn þurfi að draga upp kreditkortið sitt á slysavarðsstofu sé ósmekkleg og ljót. Hann vill að ríkið standi undir öllum kostnaði við heilbrigðisþjónustu landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×