Glamour

Kanye West setti tóninn fyrir tískuvikuna í New York.

Ritstjórn skrifar
Yeezy Season 3
Yeezy Season 3 Glamour/Getty
Tónlistarmaðurinn og já núna fatahönnuðurinn líka Kanye West fór alla leið í gærkvöldi þegar hann lagði undir sig Madison Square Garden í New York til að frumsýna þriðju fatalínu Yeezy og sömuleiðis frumflytja nýja plötu. 

Tískusýningin var með óvenjulegum hættu. Í stað tískupallar var svið í miðjum salnum, nokkrir pallar og fyrirsæturnar ýmist stóðu eða sátu í hnapp klæddar í fatalínu Kanye. Um línuna sjálfa má segja að hann var samur við sig með jarðlitum og fatnaði í götutískustíl. 

Hápunkturinn var þegar ofurfyrisætan sjálf Naomi Campell steig á sviðið og pósaði en hún hefur engu gleymt. Þá mátti sjá nýja útgáfu af strigaskónum vinsæla, sem verslunin Húrra Reykjavík er einmitt að fá í sölu, spurning hvort þessi nýja útgáfa komi til Íslands næsta vetur?







Naomi Campell
Hönnuðurinn sjálfur og tónlistarmaðurinn þakkar fyrir sig í lokinn.
Strigaskórnir - ný týpa sem er líkleg til vinsælda næsta vetur.





×