Innlent

Rúmur meirihluti vill sjá Baldur og Felix á Bessastöðum

Jakob Bjarnar skrifar
Meirihluti spurðra er jákvæður gagnvart þeirri hugmynd að næsti forseti verði dr. Baldur Þórhallsson með Felix Bergsson sér við hlið.
Meirihluti spurðra er jákvæður gagnvart þeirri hugmynd að næsti forseti verði dr. Baldur Þórhallsson með Felix Bergsson sér við hlið.
Vísir hefur undir höndum niðurstöðu Gallup-könnunar þar sem spurt er: „Ert þú já­kvæð(ur) eða nei­kvæð(ur) gagn­vart því að dr. Bald­ur Þór­halls­son, pró­fess­or í stjórn­mála­fræði verði næsti for­seti Íslands og setj­ist ásamt maka sín­um Fel­ix Bergs­syni á Bessastaði?“ Niðurstaðan liggur fyrir og í ljós kemur að liðlegur meirihluti, eða 51,4 prósent, lýsir sig jákvæðan gagnvart þeirri hugmynd.

Sé könnunin greind frekar kemur í ljós að meðal þeirra sem afstöðu tóku eru 17,1 prósent svarenda eru mjög jákvæðir, 34,4 prósent frekar jákvæðir, 20,6 prósent eru frekar neikvæðir og mjög neikvæðir eru 27,9 prósent.

Úrtak taldi 1438, þeir sem ekki svöruðu voru 579, fjöldi svarenda eru 859 sem þýðir að þátttökuhlutfall eru rétt tæp 60 prósent.

Skjáskot úr könnuninni.
Samkvæmt heimildum Vísis hefur Baldur ekki gert upp hug sinn enn. Víst má telja að niðurstöður þessarar könnunar verði til þess að hann hugleiði framboð af meiri alvöru nú en verið hefur. Samkvæmt þessum tölum má heita víst að framboð hans yrði umdeilt. Baldur hefur verið í framboði fyrir Samfylkinguna og er ekki í hávegum hafður meðal til að mynda flokkshollra Sjálfstæðismanna.

Nokkra athygli vekur að rétt rúm 30 prósent þeirra sem spurðir voru vita ekki eða vissu hver dr. Baldur Þórhallsson er. Í forsetaframboði skiptir maki frambjóðanda máli, það hefur sýnt sig í tilfelli Ólafs Ragnars Grímssonar, en hann hefur verið þeirrar gæfu aðnjótandi haft við hlið sér í forsetakosningum vinsæla maka, sem hafa skipt sköpum. Felix Bergsson, eiginmaður Baldurs, er vinsæll sjónvarpsmaður og leikari og telja má víst að hann muni reynast eiginmanni sínum stoð og stytta, ákveði Baldur að fara fram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×