Formúla 1

Myndband: McLaren setur í gang

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Jenson Button á McLaren-Honda bílnum í Abú Dabí 2015.
Jenson Button á McLaren-Honda bílnum í Abú Dabí 2015. Vísir/Getty
McLaren og Honda endurnýjuðu kynni sín í Formúlu 1 fyrir síðasta tímabil. Árangurinn lét á sér standa og liðið náði aðeins í 27 stig og níunda sæti í keppni bílasmiða.

Honda vélin var að margra mati einn helsti sökudólgurinn fyrir getuleysi bílsins. Nú telur Honda að vélin hafi náð miklum framförum í vetur.

McLaren þarf á Honda að halda og Honda hefur orðspori að bjarga. Það er því mikið undir hjá báðum aðilum fyrir tímabilið.

Ökumenn McLaren liðisins, Jenson Button og Fernando Alonso eru líklega orðnir langþreyttir á því að vera aftarlega á ráslínu. Alonso lét óánægju sína í ljós á síðasta tímabili.

„Ég er eins og viðvaningur hérna. Þetta er eins og GP2 vél, þetta er vandræðalegt,“ sagði tvöfaldi heimsmeistarinn. Ætla má að þeir reyni að flýja McLaren hratt ef vélin verður ekki betri í ár.

Hér fyrir neðan má hlusta á fyrstu ræsingu Honda vélarinnar sem verður um borð í MP4-31 bíl McLaren liðsins. Mikil spenna er um hversu miklum framförum vélin hefur tekið.


Tengdar fréttir

Pascal Wehrlein keppir með Manor

Pascal Wehrlein mun aka með Manor liðinu á komandi tímabili í Formúlu 1. Wehrlein var þróunarökumaður Mercedes liðsins á síðasta tímabili ásamt því að verða meistari í DTM.

Honda klárar uppfærsluskammtana í Rússlandi

Fernando Alonso, annar ökumanna McLaren-Honda liðsins mun nota ný uppfærða vél í rússneska kappakstrinum um helgina. Liðsfélagi hans, Jenson Button notar gömlu vélina.

Red Bull og Ferrari með auga á McLaren

McLaren gæti ógnað Red Bull á næsta tímabili ef marka má helsta hönnunargúrúið í Formúlu 1, Adrian Newey. Ferrari gæti líka fundið fyrir McLaren samkvæmt liðsstjóra Ferrari.

Berger: Alonso er ekki lengur bestur

Gerhard Berger, fyrrum Formúlu 1 ökumaður segir að síðasta tímabil hafi eitt og sér breytt ásýnd tveggja bestu ökumannanna í Formúlu 1.

Frumsýningar í Formúlu 1

Formúlu 1 tímabilið hefst 18. mars næstkomandi, með föstudagsæfingum í Ástralíu. Fyrst fara fram æfingar og frumsýningar liðanna á nýjum bílum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×