Körfubolti

Svakaleg tölfræði hjá Martin í síðustu sex leikjum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Martin hefur spilað frábærlega í síðustu leikjum LIU Brooklyn.
Martin hefur spilað frábærlega í síðustu leikjum LIU Brooklyn. Vísir/EPA
Íslenski landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson er heldur betur að vekja athygli á sér vestan hafs með frábærri frammistöðu sinni þessa dagana með skólaliði LIU Brooklyn.

Martin átti enn einn stórleikinn í gær þegar LIU Brooklyn vann St. Francis Brooklyn 82-67 í Íslendingaslag. Hann var stigahæstur í liðinu með 19 stig auk þess að taka 7 fráköst, gefa 5 stoðsendingar, stela 5 boltum og tapa ekki einum einasta bolta.

Það er skemmtilegt lesning að fara yfir frammistöðu Martin í síðustu sex leikjum LIU Brooklyn því hann hefur verið að bjóða upp á svakalega tölfræði á þessum 19 dögum.

LIU Brooklyn liðið hefur unnið fjóra af þessum sex leikjum en Martin hefur verið stighæstur í fjórum þeirra.

Í undanförnum sex leikjum hefur Martin skorað 20,8 stig í leik, tekið 6,7 fráköst í leik, gefið 4,7 stoðsendingar að meðaltali í leik og stolið 2,3 boltum í leik.

Hann er með samtals 28 stoðsendingar en aðeins 9 tapaða bolta. Það þýðir yfir þrjár stoðsendingar á hvern tapaðan bolta.

Martin hefur hitt úr 49 prósent skotanna og 40 prósent þriggja stiga skotanna í þessum sex leikjum og þá er vítanýting hans 87 prósent því 47 af 54 vítum hans hafa ratað rétta leið.

Hér fyrir neðan en tölfræði Martins í þessum sex leikjum:

92-84 sigur á Sacred Heart

22 stig - 8 fráköst - 7 stoðsendingar - 5 stolnir

85-88 tap fyrir Fairleigh Dickinson

21 stig - 3 fráköst - 5 stoðsendingar - 2 stolnir

77-74 sigur á Mount St. Mary's

21 stig - 7 fráköst - 3 stoðsendingar - 0 stolnir

90-98 tap fyrir Sacred Heart

25 stig - 4 fráköst - 1 stoðsending - 1 stolinn

82-69 sigur á WAGNER

17 stig - 11 fráköst - 5 stoðsendingar - 1 stolinn

92-67 sigur á St. Francis Brooklyn

19 stig - 7 fráköst - 5 stoðsendingar - 5 stolnir


Tengdar fréttir

Ótrúlegur leikur hjá Martin

Íslenski landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson fór á kostum með liði sínu, LIU, í bandaríska háskólaboltanum í nótt.

Martin valinn leikmaður vikunnar í NEC-deildinni

Íslenski landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson átti frábæra viku með körfuboltaliði LIU Brooklyn skólans og hann var í kvöld valinn leikmaður vikunnar í NEC-deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×