Körfubolti

Helgi Már: Á eftir að sakna hláturskastanna á hótelherberginu

Helgi Már lék 95 landsleiki á ferlinum.
Helgi Már lék 95 landsleiki á ferlinum. Vísir/Anton
Helgi Már Magnússon varð um helgina bikarmeistari í körfubolta með liði sínu, KR, í fyrsta sinn á ferlinum. Sá titill hafði mikla þýðingu fyrir hann eins og hann lýsti í viðtali við Fréttablaðið í morgun.

Helgi Már hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna í lok tímabilsins en vonast auðvitað til að því ljúki með því að KR verði Íslandsmeistari þriðja árið í röð. Alls hefur Helgi Már þrisvar sinnum orðið Íslandsmeistari með félaginu.

Sjá einnig: Helgi Már: Skuldaði sjálfum mér að vinna

Hann á líka glæstan landsliðsferil að baki sem telur alls fjórtán ár. Hann hefur alls leikið 95 landsleiki og skorað í þeim 509 stig. Hápunkturinn á ferlinum var, eins og hjá mörgum öðrum landsliðsfélögum hans, að spila á EM í Berlín síðastliðið haust.

„Eins ótrúlega gaman og það var og skemmtileg upplifun var það afar svekkjandi að hafa meiðst í undirbúningnum,“ sagði Helgi Már sem sleit sin í ökklanum á æfingu. „Ég er ofboðslega þakklátur fyrir að hafa farið á mótið og fengið mínútur. En auðvitað hugsar maður með sér að maður hefði viljað fá stærra hlutverk. Mér leið alltaf eins og ég ætti eitthvað „móment“ inni.“

Helgi Már Magnússon fagnar eftir landsleik.Vísir/Anton
Fyrir stuttu síðan var dregið í undankeppni EM 2017 og var Ísland í riðli með Belgíu, Sviss og Kýpur. Efsta liðið kemst beint á EM og liðið í öðru sæti á góðan möguleika á að fara áfram. Möguleikar Íslands eru því ágætir.

Helgi Már hefur ekki áhyggjur af því að það verði erfitt fyrir hann að standa fyrir utan landsliðið í fyrsta sinn í langan tíma næst þegar það kemur saman.

„Það hefði verið gaman fyrir mig að spila gegn Sviss enda spilaði ég sjálfur þar á sínum tíma. En að sama skapi fannst mér að ég væri ekki að gegna lykilhlutverki í landsliðinu lengur og ekki að spila mikið. Ég dvel því ekki mikið við þetta núna en hver veit hvað gerist í sumar þegar strákarnir koma saman og byrja að æfa.“

„Ég held að ég muni fyrsta og fremst sakna þess að umgangast þessa stráka sem ég hef þekkt svo lengi. Við höfum margir verið saman síðan í unglingalandsliðunum og þeir hafa því verið stór hluti af mínu lífi.“

„Það var alltaf fastur punktur í tilverunni að vera með þeim, í einhverri vitleysu uppi á hótelherbergi - í hláturskasti langt fram eftir nóttu. Ég á eftir að sakna þess mest.“


Tengdar fréttir

Langþráðir bikararar á leiðinni?

Bikarúrslitaleikjadagurinn er runninn upp og fyrstu stóru bikarar körfuboltatímabilsins fara á loft í Laugardalshöllinni í dag. Karlalið KR og kvennalið Snæfells hafa bæði unnið bæði Íslandsmeistaratitilinn og deildarmeistaratitilinn undanfarin tvö tímabil en hvorugt liðið hefur náð að fagna bikarmeistaratitli.

Helgi Már: Skuldaði sjálfum mér að vinna

Helgi Már Magnússon varð um helgina bikarmeistari í körfubolta eftir langa bið. Hann var maður leiksins hjá KR og bætti þar með fyrir tapið grátlega gegn Stjörnunni í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×