Innlent

Fá dvalarleyfi af mannúðarástæðum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Systurnar Jana og Joula á leikskólanum sínum Drafnarsteini fyrr í vetur.
Systurnar Jana og Joula á leikskólanum sínum Drafnarsteini fyrr í vetur. vísir/Vilhelm
Sýrlensku hjónin Wael Aliyadah og Feryal Aldadash og dætur þeirra tvær, Jana og Joula, hafa fengið dvalarleyfi hér á landi af mannúðarástæðum.

Sjá einnig:Leikskólastjórarnir vilja ekki sjá á bak systrunum

Frá þessu er greint á Facebook-síðu Rauða krossins en mál fjölskyldunnar vakti mikla athygli fyrir áramót þar sem umsókn þeirra um hæli hér var ekki tekin fyrir af Útlendingastofnun. Ástæðan var sú að fjölskyldan hafði þegar fengið hæli í Grikklandi.

Sjá einnig: Voru á vergangi í Grikklandi

Wael og Feryal kærðu þessa ákvörðun til kærunefndar útlendingamála og nú liggur fyrir að fjölskyldan getur verið hér áfram.

Núna í morgun var mikil gleði í lítilli íbúð í miðborg Reykjavíkur. Eftir að hafa rölt með þær Jana og Jouli í leikskó...

Posted by Rauði krossinn on Tuesday, 16 February 2016

Tengdar fréttir

Voru á vergangi í Grikklandi

Wael Aliyadah og Feryal Aldahash voru nauðbeygð til að sækja um hæli í Grikklandi. Aðbúnaður þar var slæmur og oft var fjölskyldan á vergangi. Þau flúðu til Íslands til að tryggja öryggi dætra sinna, Jönu og Joulu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×