Glamour

Glamúr og glimmer hjá Bpro

Kynnir skrifar
Silla og Sara hjá Reykjavík Makeup School með þeim Sigrúnu og Baldri hjá Bpro
Silla og Sara hjá Reykjavík Makeup School með þeim Sigrúnu og Baldri hjá Bpro Glamour/Snorri Björns
Heildsalan Bpro hélt á laugardagskvöld stærstu og glæsilegustu hársýningu sem haldin hefur verið hér á landi.

Þangað mættu um 220 aðilar úr hárbransanum á Íslandi til þess að sjá dýrðina sem Bpro bauð upp á í samstarfi við L'Oréal, Sólbert, Sign, After Eight, Doritos, Kroneborg Blanc og Piccini. Einnig voru Harpa Ómarsdóttir, eigandi Hárakademíunnar, ásamt áhugasömum nemendum með í verkefninu frá upphafi.

“Það er nú ekki hægt að segja annað en að þetta hafi verið ein mesta og glæsilegasta sýning sem við höfum nokkurn tímann haldið. Og hver veit hvað við gerum næst,“ segir Baldur Rafn Gylfason eigandi bpro sem er gríðarlega stoltur af sínu liði eftir sýninguna.

Eitt færasta hárgreiðslufólk heims kom frá Toni&Guy og hélt námskeið fyrir hárgreiðslufólk á Íslandi, og um kvöldið var sýning á því nýjasta frá Toni&Guy. Að auki var frumsýnd nýjasta línan frá LabelM, Diamond Dust, en Bpro er umboðsaðili LabelM á Íslandi. 



Um förðunina sáu þær Silla og Sara frá Reykjavík Makeup School ásamt teymi af útskrifuðum nemendum með förðunarvörum frá L'Oréal. 

Um kvöldið var skálað í kampavíni á meðan leynigesturinn Glowie tók nokkur lög. Eftir stórglæsilega hársýningu, endaði Páll Óskar svo kvöldið með confetti sprengjum og gleði, eins og honum einum er lagið.

Eftir mjög velheppnaða sýningu fluttist stuðið uppí Petersensvítuna þar sem DJ Atli þeitti skífum og fékk alla á dansgólfið. En dansað var langt fram á nótt í góðum félagsskap.

Glamour/Snorri Björns
Glamour/Snorri Björns
Hluti af teyminu frá Reykjavík Makeup SchoolGlamour/Snorri Björns
Stelpurnar á Zone AkureyriGlamour/Snorri Björns
Glamour/Snorri Björns
Erna Hrund og Þórunn ÍvarsGlamour/Snorri Björns
Glamour/Snorri Björns
Páll Óskar lokaði sýningunni eins og honum einum er lagiðGlamour/Snorri Björns
Silla og Sara, eigendur Reykjavík Makeup School
Nóg um að vera baksviðs
Makeup staff kvöldsins
Baldur eigandi Bpro





×