Körfubolti

Ætlum að ná í sigur í Portúgal | Myndir

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Berglind Gunnarsdóttir með boltann og reynir að halda honum frá systur sinni, Gunnhildi Gunnarsdóttur, á landsliðsæfingu í gær.
Berglind Gunnarsdóttir með boltann og reynir að halda honum frá systur sinni, Gunnhildi Gunnarsdóttur, á landsliðsæfingu í gær. ísir/Anton Brink
Á laugardaginn mætir Ísland liði Portúgals í undankeppni EM 2017 en leikurinn fer fram ytra. Liðið, undir stjórn Ívars Ásgrímssonar, hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í keppninni en stefnir óhikað að því að sækja til sigurs um helgina.

„Portúgal er það lið í riðlinum sem við töldum fyrirfram að við ættum hvað mesta möguleika á að vinna,“ segir Ívar en þar að auki eru Ungverjaland og Slóvakía í riðlinum – bæði ógnarsterk lið sem hafa verið í fremstu röð í Evrópu um árabil.

Anton Brink, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á æfingu liðsins í gær og tók myndirnar hér að ofan.

„Það hentar okkur ágætlega að spila gegn Portúgal. Þær sækja mikið inn í teiginn og spila sterka vörn. Portúgal á tvo mjög sterka leikmenn sem eru aðallega í kringum teiginn og við þurfum að hafa góðar gætur á þeim,“ segir hann enn fremur.

Ívar vonast til þess að liðið haldi áfram að bæta sig og hann óskar eftir stærra sóknarframlagi frá sínum leikmönnum. „Við þurfum að halda áfram að spila þann varnarleik sem við höfum verið að gera og bæta okkur í sókninni. Það þurfa fleiri að skora og ég hef fulla trú á að það lið sem við erum að fara með út geti gert góða hluti í þessum leik.“

Portúgal tapaði fyrir Ungverjalandi og Slóvakíu í fyrstu tveimur leikjum sínum í keppninni, rétt eins og Ísland, og eru bæði lið því með tvö stig í F-riðli undankeppni EM 2017.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×