Enski boltinn

Stúlkan segist „algjörlega hata“ Adam Johnson

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Johnson mætir til réttarhaldanna í gær. Í forgrunni er Stacey Flounders, unnusta hans.
Johnson mætir til réttarhaldanna í gær. Í forgrunni er Stacey Flounders, unnusta hans. Vísir/Getty
Stúlkan sem Adam Johnson átti í kynferðislegu sambandi við hélt í gær áfram að gefa vitnisburð í réttarhöldunum sem nú standa yfir í Englandi.

Johnson hefur verið kærður fyrir að tæla og eiga í kynferðislegu sambandi við fimmtán ára stúlku en í upphafi vikunnar lýsti hún því hvernig kynni þeirra hófust og hvað átti sér stað þeirra á milli.

Sjá einnig: Fórnarlamb Johnson vildi vernda hann

Sjálfur hefur Johnson gengist við því að vingast við stúlkuna í því skyni að koma á kynferðislegu sambandi og játað því að hafa kysst hana. Hann neitar þó tveimur og öllu alvarlegri kærum um kynferðislegt samneyti við ólögráða barn.

Stúlkan, sem er í dag sextán ára og nýtur nafnleyndar, var spurð í gær hvort hún „hataði algjörlega“ Johnson af verjanda knattspyrnukappans.

Johnson hélt áfram að spila hjá Sunderland eftir að hann var kærður.Vísir/Getty
Hann lét hvetja sig áfram

„Já, ég geri það. Eftir allt það sem hann hefur látið mig ganga í gegnum. Hann sagði öllum að hann væri saklaus og lét fólk kalla mig lygara. Hann lét fólk hvetja sig áfram í leikjum og lét fólk kalla mig öllum mögulegum illu nöfnum.“

Sjá einnig: Johnson var átrúnaðargoð stúlkunnar sem hann misnotaði

Stúlkan staðfesti í gær að hann hefði samþykkt vinabeiðni hennar á Facebook og byrjað að spjalla við hana þegar hún var enn fimmtán ára gömul. Hún segir að skilaboðin frá honum hafi að nokkru leyti vakið henni óhug.

„Ég hélt að þegar ég var búin að segja honum hvað ég væri gömul myndi hann bakka út úr þessu. Hver biður um símanúmer hjá einhverjum stuðningsmanni út í bæ?“

Johnson var rekinn frá Sunderland eftir að hann játaði á sig tvo kæruliði.Vísir/Getty
Átti erfitt með að halda ró sinni

Verjandi knattspyrnumannsins hélt áfram að spyrja hana um samband þeirra en stúlkan átti erfitt með að halda ró sinni og grét á meðan að hún svaraði spurningum hans.

Sjá einnig: Johnson játar kynferðisbrot gegn barni

Hún segist hafa viljað gera sig stóra í augum vina sinna og gorta sig af samskiptum hennar við Johnson. „Hversu margir táningar geta sagt að svona lagað hafi hent þá?“

„Mér fannst ég vera stór og fannst ég vera sniðug. Nú finnst mér ég vera heimsk fyrir að hafa ekki áttað mig á þessu þá.“

Réttarhöldin halda áfram í dag.


Tengdar fréttir

Johnson ekki með Sunderland um helgina

Adam Johnson verður ekki með Sunderland þegar liðið tekur á móti Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í hádeginu á laugardaginn.

Sunderland rekur Johnson

Enska úrvalsdeildarfélagið Sunderland hefur rekið Adam Johnson en hann hefur játað á sig kynferðisbrot gegn barni.

Fórnarlamb Johnson vildi vernda hann

Knattspyrnumanninum Adam Johnson er gefið að sök að hafa stundað kynferðislegt athæfi með fimmtán ára stúlku, sem bar vitni í réttarhöldunum í gær.

Johnson játar kynferðisbrot gegn barni

Adam Johnson, leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Sunderland, hefur játað fyrir rétti að hafa brotið kynferðislega gegn stúlku undir samræðisaldri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×