Enski boltinn

Framherji Bournemouth má leika með landsliði Kongó

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Afobe hefur skorað grimmt síðustu mánuðina.
Afobe hefur skorað grimmt síðustu mánuðina. vísir/getty
Benik Afobe, framherji enska úrvalsdeildarliðsins Bournemouth, liggur nú undir feldi og íhugar hvort hann eigi að gefa kost á sér í landslið Kongó.

Afobe hefur leikið fyrir yngri landslið Englands en á þess kost að spila fyrir Kongó sem er heimaland foreldra hans.

„Við sjáum hvað setur í næsta landsleikjahléi. En ég veit að þeir hafa áhuga á mér og það er eitthvað sem ég þarf að ræða við fjölskyldu mína og umboðsmann,“ sagði Afobe sem vill ekki ana að neinu.

„Þetta er stór ákvörðun því þú getur ekki skipt eftir að þú spilar keppnisleik. Þú þarft að taka ákvörðun og lifa með henni,“ bætti framherjinn við.

Afobe, sem er uppalinn hjá Arsenal, sló í gegn hjá Wolves þar sem hann skoraði 22 mörk í 46 deildarleikjum. Hann var svo keyptur til Bournemouth í janúar fyrir rétt tæplega 10 milljónir punda.

Afobe, sem er nýorðinn 23 ára, hefur farið vel af stað með Bournemouth og skorað þrjú mörk í fyrstu sex deildarleikjum sínum fyrir félagið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×