Sport

Jakob sló í gegn

Telma Tómasson skrifar
Jakob Svavar Sigurðsson átti um margt ógleymanlega sýningu í keppni í gæðingafimi í hestaíþróttum í Meistaradeildinni. Á einstakan hátt sýndi hann hvernig unnt er að hafa áhrif á og stjórna orkustigi og formi hests með minnstu mögulegu ábendingum.

Jakob Svavar hlaut annað sæti í gæðingafiminni í ár en sýningu hans má sjá á meðfylgjandi myndbandi hér fyrir ofan. 

Þótti einstakt þegar Jakob Svavar sýndi hryssuna Gloríu frá Skúfslæk á tölti í mjög lágum höfuðburði og með slaka yfirlínu og gat svo undið hana upp í söfnun á sömu gangtegund án þess að taktur eða form glataðist. Þótti þessi æfing vera til marks um frábæra  reiðmennsku og samspil knapa og hests.

Þá má hér fyrir neðan sjá sýningu sigurvegarans Árna Björns Pálssonar á Skímu frá Kvistum.

Gæðingafimi í hestaíþróttum er tiltölulega ný keppnisgrein á Íslandi og er enn að þróast í útfærslu. Litið er til hennar sem framtíðar keppnisgreinar í Íslandshestaheiminum, en þess ber að geta að í fyrsta sinn verður keppt í gæðingafimi á erlendri grund nú um helgina.

Keppni í greininni fer fram á Arctic Equestrian Games (AEG) í Noregi, en það er með stærstu innanhúsmótum sem haldið er á Norðurlöndunum. Meðal keppenda eru þekktir knapar, meðal annars úr norska landsliðinu.

Upprifjun frá keppni í gæðingafimi í Meistaradeildinni er á dagskrá á Stöð 2 Sport í kvöld, fimmtudagskvöld.


Tengdar fréttir

Árni Björn kominn í gírinn

Afreksknapinn Árni Björn Pálsson er farinn að láta til sín taka í Meistaradeildinni í hestaíþróttum, en í gærkvöldi fór hann með sigur af hólmi í keppni í gæðingafimi á tölthryssunni Skímu frá Kvistum. Hlaut hann 8.31 í lokaeinkunn, sem er fádæma góður árangur í þessari keppnisgrein.

Að stökkva út í djúpu laugina

"Það er blendin tilfinning í manni, því það er mikill undirbúningur fyrir þetta,“ segir Hulda Gústafsdóttir, afreksknapi, kankvís um keppni í gæðingafimi í Meistaradeildinni í hestaíþróttum, sem fram fer í kvöld, fimmtudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×