Körfubolti

Mitchell fékk lungnabólgu | Ekki með í kvöld

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir
ÍR-ingar mæta sterku liði Njarðvíkur í kvöld án Bandaríkjamannsins Jonathan Mitchell.

Mitchell fékk lungnabólgu í síðustu viku og var lagður inn á spítala um helgina. Hann hefur þó verið útskrifaður og er á leiknum í Seljaskóla í kvöld.

Þetta er í annað skiptið á tímabilinu sem Mitchell missir af leik vegna veikinda en í haust var hann frá í nokkrar vikur eftir að hafa fengið blóðtappa.

Sjá einnig: Kaninn í ÍR fékk blóðtappa

ÍR á veika von um að komast í úrslitakeppnina en liðið er í tíunda sæti Domino's-deildar karla með tíu stig - sex stigum á eftir Grindavík sem er í áttunda sæti. Átta efstu lið deildarinnar komast í úrslitakeppnina í vor en ÍR á aðeins fimm leiki eftir af deildarkeppninni.

Mitchell er lykilmaður í liði ÍR en hann er fjórði stigahæsti leikmaður deildarinnar með 26,4 stig að meðaltali. Þá hefur hann tekið 11,1 frákast að meðaltali í leik.

Fylgst er með leik ÍR og Njarðvíkur í beinni textalýsingu hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×