Glamour

Tískustjörnurnar elska strigaskó Kanye West

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Ætli við munum ekki minnast þessa dags í framtíðinni sem Yeezy dagsins. Dagurinn þegar strigaskórinn frægi eftir Kanye  West fór í sölu hér á Íslandi og fólk tjaldaði á Hverfisgötunni í hátt í tvo sólarhringa. 

K
lukkan 11 á eftir opnar verslunin Húrra Reykjavík og strigaskórinn fer formlega í sölu. Skórinn kostar 34.990 krónur en sagt er að hægt sé að selja hann á netinu á næstum 200 þúsund krónur enda eftirsóttur gripur. Ekki slæm ávöxtun það. 

Yeezy skórinn kemur alveg niður í stærð 37 1/3 minnst og því bæði fyrir dömur og herra. Skórinn hefur verði gríðarlega vinsæll út um allan heim og götustískustjörnur jafn og aðrar stjörnur fallið fyrir strigaskónum sem er samstarf West og Adidas. 

Velheppnaður, nettur og örugglega þægilegur strigaskór sem hægt er að para saman við hvað sem er. Glamour er hrifið og tók saman nokkrar flottar myndir til að gefa væntanlegum Yeezy eigendum hér á landi innblástur. Spurning um að skella sér í röðina?

Joe Jonas í Yeezy
Kourtney Kardashian
Flottir í ljósum lit líka.
Gigi Hadid.
Söngkonan Lorde.





×