Viðskipti innlent

Gengið til samninga við Reebok Fitness

Sæunn Gísladóttir skrifar
Þetta er fjórða útboðið sem Kópavogsbær heldur vegna reksturs líkamsræktarstöðva við sundlaugar í Kópavogi.
Þetta er fjórða útboðið sem Kópavogsbær heldur vegna reksturs líkamsræktarstöðva við sundlaugar í Kópavogi. Visir/Vilhelm
Ákveðið var á bæjarfundi Kópavogs í gær að ganga til samninga við RFC ehf (Reebok Fitness) vegna útleigu á líkamsræktaraðstöðu í sundlaugum Kópavogs.

Lokað var fyrir tilboð á þriðjudaginn í síðustu viku og bárust alls fjögur tilboð, frá Gym heilsu, Reebok Fitness, World Class og Förlunda Gard AB.

Þetta var í fjórða sinn sem slíkt útboð er haldið. Viðskiptablaðið greindi frá því í byrjun mánaðar að allt stefndi í að Kópavogsbær myndi þurfa að mæta World Class og Gym heilsu í dómsal vegna umdeildra útboða áður






Fleiri fréttir

Sjá meira


×