Sport

Hvernig hljómar Las Vegas Raiders?

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Stuðningsmenn Raiders í Oakland vilja alls ekki missa félagið úr borginni.
Stuðningsmenn Raiders í Oakland vilja alls ekki missa félagið úr borginni. vísir/getty
Las Vegas hefur lengi verið á höttunum eftir atvinnuliði í stóru íþróttunum í Bandaríkjunum og það gæti farið svo að Las Vegas fái NFL-lið.

Eigandi Oakland Raiders, Mark Davis, er á leiðinni til Vegas á næstunni til þess að hitta menn sem ætla að byggja risastóran íþróttaleikvang í borginni.

Áætlað er að byggja 65 þúsund manna leikvang á svæði háskólans í Las Vegas. Hann verður líklega byggður þó svo ekkert NFL-lið komi á næstunni.

Raiders hefur þó áhuga á að skoða þennan möguleika. Davis sótti um að flytja félagið til Los Angeles en hafði ekki erindi sem erfiði.

Ef Davis vill flytja félagið til Vegas þá verður hann að fá samþykki 75 prósent annarra eigenda liða í deildinni.

Við gætum því hugsanlega fengið Las Vegas Raiders í NFL-deildinni eftir nokkur ár.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×