Enski boltinn

Stoke City átti stærstu kaupin á síðasta degi gluggans

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Giannelli Imbula í leik með Porto.
Giannelli Imbula í leik með Porto. Vísir/Getty
Giannelli Imbula varð í dag dýrasti leikmaðurinn í sögu Stoke City eftir að enska úrvalsdeildarfélagið keypti hann á 18,3 milljónir punda frá Porto.

Stoke hafði áður eytt mestu í Svisslendinginn Xherdan Shaqiri sem félagið keypti á 12 milljónir punda frá Internazionale fyrir núverandi tímabil.

Giannelli Imbula er ekki aðeins dýrasti leikmaðurinn í sögu Stoke því ekkert enskt félag eyddi meiru í einn leikmann í þessum félagsskiptaglugga sem lokaði í kvöld.

Giannelli Imbula er 23 ára gamall franskur miðjumaður sem var aðeins hálft tímabil hjá Porto.

Porto keypti hann frá franska félaginu Marseille í júlí en hann hafði spilað með Marseille í tvö tímabil.

„Giannelli er mjög góður ungur leikmaður," sagði Mark Hughes, knattspyrnustjóri Stoke í viðtali á heimasíðu félagsins í kvöld.

„Hann er kraftmikill, góður með boltann og getur gefið langar og góðar sendingar. Það er enginn vafi á því að hann gerir liðið betra," sagði Hughes.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×