Enski boltinn

Ranieri hvetur sína menn til að grípa tækifærið í þessari „brjáluðu deild“

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Claudio Ranieri er að gera frábæra hluti með Leicester.
Claudio Ranieri er að gera frábæra hluti með Leicester. vísir/getty
Claudio Ranieri, knattspyrnustjóri Leicester, segir að sínir menn verði að nýta tækifærið í toppbaráttunni í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð því tímabilið hefur verið stórskrítið.

Eftir 23 umferðir er Leicester á toppi deildarinnar með þriggja stiga forskot á Arsenal, en lærisveinar Ranieri taka á móti Liverpool þegar 24. umferðin hefst í kvöld.

Ítalinn fékk leyfi til að styrkja hópinn fyrir átökin á seinni hluta leiktíðarinnar og fékk til sín Demarai Gray frá Birmingham og varnarmanninn Daniel Amartey frá FCK í Danmörku.

„Þetta er brjáluð deild,“ sagði Ranieri á blaðamananfundi fyrir leikinn gegn Liverpool. „Okkur gengur alveg frábærlega en mér finnst sum lið vera að spila undir getu.“

„Ég veit ekki af hverju það er. Það er eitthvað skrítið að Leicester sé á toppnum en það hentar okkur vel. Við erum að spila vel og viljum vera áfram á toppnum því það er mikið af stórliðum sem eru langt frá sínum vanalega stað í töflunni.“

„Deildin er skrítin í ár og lið eins og við getum gert góða hluti. Þetta er rétta árið fyrir okkur að keyra á þetta því þetta er ekki hefðbundið tímabil í ensku úrvalsdeildinni,“ sagði Claudio Ranieri.

Leikur Leicester og Liverpool verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 HD klukkan 21.35 í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×