Skoðun

SOS - Við erum að kafna úr myglu!

Inga María Árnadóttir skrifar
Háskóla Íslands má líkja við splundraða legókubbaborg. Byggingar skólans, sem eru á þriðja tug, eru á víð og dreif um borgina. Oft þurfa nemendur að flakka á milli húsa til að sækja kennslustundir en aðrir, eins og t.a.m. hjúkrunarfræðinemar, eru afar lánsamir og hafa aðstöðu á einum stað. Nánar tiltekið í gamla Eirbergi, sem áður var heimavist hjúkrunarkvenna. Heppnir, en á sama tíma alveg stórkostlega óheppnir.

Eirberg var teiknað árið 1952 og reist á sjötta áratugnum. Húsið er jafn gamalt ömmu gömlu sem hefur fengið tvo gerviliði og ígræddan gangráð á þessum tíma. Eirberg hefur hins vegar ekki fengið sambærilega yfirhalningu, heldur molnað niður og myglað eins og nesti sem gleymist í töskunni síðasta skóladaginn fyrir sumarfrí.

Sérstakur antík-ilmur fyllir ganga Eirbergs. Þegar ég gegn um, fylli ég lungun af lofti og soga í mig stemninguna. Ég hugsa með mér hversu mikil þekking hefur skapast í þessu húsi og það hefur hvetjandi áhrif á mig. Þegar ég sit inni á lesstofu sé ég gömlu hjúkrunarkonurnar fyrir mér sitja við þessi sömu skrifborð, með þessi sömu lesljós. Lykt getur haft sérkennileg áhrif. Ég dýrkaði þetta umhverfi, allt þar til ég komst að því að það væri anganin af myglusvepp sem daglega fyllti vit mín, ekki angan af áratuga gamalli þekkingu og reynslu.

Ég fíla hefðir og sögu, enda mikill sjarmi yfir þessari byggingu, allavega við fyrstu sýn. En nú eru nemendur hættir að nýta sér lesaðstöðuna og farnir að mæta sjaldnar í tíma sökum þessa. Margir kvarta undan síþreytu, einbeitingarleysi og stöðugum veikindum. Eins neitaði einn kennari að kenna framar í þessu húsnæði og því hafa sumir nemendur verið á vergangi þessa önnina.

Hinn ágæti Tómas Guðbjartsson steig fram á síðasta ári og greindi frá þeim slæmu áhrifum sem myglan í skrifstofuhúsnæði Landspítalans hafði á heilsu hans. Fordómar eru víða gagnvart þessu heilsufarsvandamáli og hann segir að á þessum tíma hafi hann verið talinn vera þunglyndur og fúll. Ástandið í Eirbergi er afar sambærilegt því sem skapast hefur í húsnæði Landspítalans og er tilkomið vegna skorts á viðhaldi og nýbyggingu.

Ég leyfi mér að fullyrða að margir nemendur í Eirbergi eru ansi langt niðri og fúlir á þessari stundu. Hvort það er beintengt við myglusveppinn eða brottnám kaffisjálfsalans, arfaslaka internettengingu og skipulagsleysi sem dæmi, er annað mál. Þó er á kristaltæru að málefni er varða Eirberg og deildirnar sem stunda þar nám hafa setið á hakanum allt of lengi.

Ég gúddera alveg myglaðan ost en myglaðan húsakost læt ég ekki bjóða mér tvisvar. Hversu lengi á að kenna heilbrigðisvísindi í heilsuspillandi umhverfi? 




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×