Fótbolti

Ætli Eiður Smári sé nokkuð með sama einkaþjálfara í dag og fyrir tíu árum? | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sveppi að nudda Eið Smára í auglýsingunni fyrir tíu árum.
Sveppi að nudda Eið Smára í auglýsingunni fyrir tíu árum.
Eiður Smári Guðjohnsen og Sverrir Þór Sverrisson, betur þekktur sem Sveppi, brugðu á leik fyrir tíu árum síðan þegar sjónvarpsstöðin Sýn var auglýsa spænska fótboltann sem og Meistaradeildina í fótbolta.

Leikstjórinn Kristófer Dignus rifjaði upp auglýsingaherferðina á fésbókarsíðu sinni í dag en þar má sjá Sveppa í hlutverki einkaþjálfara Eiðs Smára. Sveppi passar vel upp á sinn mann sem hann líkir við veðhlaupahest.

Eiður Smári Guðjohnsen var þarna á fullri ferð með Barcelona í Meistaradeildinni en hann varð Englandsmeistari með Chelsea tvö tímabil á undan og lék hann þá stórt hlutverk hjá Jose Mourinho.

Nú var Eiður Smári hins vegar kominn til Spánar og snúast auglýsingarnar um undirbúning Eiðs Smára fyrir komandi tímabil með Börsungum. Eiður Smári endaði á að vinna fimm titla með Barcelona liðinu þar  á meðal  þrennuna tímabilið 2008 til 2009.

Eiður Smári er enn á fullu og hefur sett stefnuna á að keppa með íslenska landsliðinu á Evrópumótinu í Frakklandi næsta sumar. Eina spurningin er hvort að hann sé með sama einkaþjálfara í dag fyrir tíu árum.

Þetta eru margar auglýsingar og hver annarri skemmtilegri enda húmorinn í hverju horni. Kristófer Dignus á hrós fyrir að deila þessu á þessum tímamótum.  „Það er ýmislegt sem kemur í ljós þegar maður dustar rykið af gömlum flakkara...,“ segir hann í færslu sinni.

Það er hægt að sjá hana hér.

Auglýsingaherferðin var mjög vel heppnuð og skemmtilegt að rifja hana upp nú þegar heill áratugur er liðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×