Fótbolti

Alfreð: Fékk aldrei skýr svör um hvers vegna ég var ekki að spila

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Alfreð Finnbogason fór frá Grikklandi til Þýskalands.
Alfreð Finnbogason fór frá Grikklandi til Þýskalands. vísir/getty
Alfreð Finnbogason gekk í byrjun vikunnar í raðir FC Augsburg í Þýskalandi frá Olympiacos í Grikklandi, en dagar hans í grísku höfuðborginni voru honum erfiðir.

Íslenski landsliðsframherjinn kom aðeins við sögu í 239 mínútur í deildinni fram að vistaskiptum sínum til Þýskalands og þá spilaði hann ekki nema 57 mínútur í Meistaradeildinni.

Þær 57 mínútur voru reyndar nóg til að skora sigurmarkið fyrir gríska liðið á móti Arsenal á Emirates-vellinum í Lundúnum. Með því varð Alfreð aðeins annar Íslendingurinn til að skora í Meistaradeildinni.

„Markið á móti Arsenal er það sem ég tek með mér frá Grikklandi. Versta upplifunin var atvikið með blysið í nágrannaslagnum á móti Panathinakos. Ég upplifði ekki margar góðar stundir því ég spilaði ekki mikið en ég skoraði samt tvö mörk,“ segir Alfreð í kveðjuviðtali við gríska vefmiðilinn Gazetta.gr.

Alfreð fagnar markinu á móti Arsenal.vísir/epa
Auðvitað er ég svekktur

Alfreð gekk í raðir Real Sociedad á Spáni sumarið 2014 eftir að verða markakóngur með Heereveen í Hollandi. Þar fékk hann líka lítið að spila og samþykkti því að fara á lán til Grikklands til að spila meira.

„Auðvitað er ég svekktur því ég kom ekki bara til Olympiacos til að spila heldur ætlaði ég að vera þar í mörg ár. Ég átti í góðu sambandi við alla; liðsfélaga mína, þjálfaraliðið, starfsliðið og stuðningsmennina,“ segir Alfreð, sem ræddi við þjálfarann sinn, Marcus Silva, tvisvar sinnum fyrir áramót um stöðu sína.

„Ég talaði við hann í septemer og aftur í október og fékk engin skýr svör um hvers vegna ég var ekki að spila. Eftir það töluðum við ekki meira saman. Það var skrítið. Ég hef alltaf verið eins og atvinnumaður, meira að segja þegar ég fékk ekkert að spila.“

Alfreð verður með strákunum okkar á EM.vísir/getty
Vinnum EM, djók.

Fram kemur í viðtalinu frá blaðamanninum að Marcus Silva gaf persónulega grænt ljós á að fá Alfreð til félagsins, en í ljósi þess er jafnvel enn furðulegra að framherjinn spilaði jafn lítið og raun bar vitni.

„Þjálfarinn einn getur svarað þessari spurningu. Eins og ég segi þá fannst mér þetta skrítið og ég er svekktur. En ég held mér jákvæðum. Það var góð upplifun að veraa í Olympiacos. Markið gegn Arsenal var til dæmis stærsta stundin á ferlinum,“ segir Alfreð.

Alfreð slær á létta strengi undir lok viðtalsins og segir íslenska landsliðið ætla að leika eftir árangur gríska liðsins á EM 2004 þegar strákarnir okkar halda til Frakklands í sumar.

„Við vinnum EM og ég skora sigurmarkið eins og Angelos Charisteas. Nei, ég er að grínast. Það verður erfitt að gera eins og Grikkland. Við erum bara ánægðir að vera komnir á EM og ætlum að gera okkar besta,“ segir Alfreð Finnbogason.


Tengdar fréttir

Maður lærir rosalega mikið á þessum erfiðu tímum

27 ára afmælisdagurinn var eftirminnilegur fyrir íslenska landsliðsmanninn Alfreð Finnbogason sem hélt upp á daginn með því ganga frá lánsamningu við Augsburg í þýsku Bundesligunni. Hann er að fara spila í sjötta landinu á fimm árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×