Innlent

Sundlaug og sjósundsaðstaða í Fossvoginum á meðal tillagna í hugmyndasamkeppni um Kársnes

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Yfirlitsmyndir af tillögunum fjórum.
Yfirlitsmyndir af tillögunum fjórum. mynd/kópavogsbær
Sundlaug og sjósundsaðstaða í Fossvoginum miðjum, flotbrú milli sveitarfélaga, söfn, yfirbyggður almenningsgarður og lífleg blöndun byggðar eru meðal þess sem lagt er til í tillögum í alþjóðlegri hugmyndasamkeppni um Kársnes, „Kársnes – sjálfbær líftaug.“

Í tilkynningu frá Kópavogsbæ vegna hugmyndasamkeppninnar kemur fram að bærinn hafi verið valinn til þátttöku í keppninni Nordic Built Cities Challenge á síðasta ári. Keppninni var svo hleypt af stokkunum síðastliðið haust og hafa fjórar tillögur nú verið valdar til áframhaldandi þátttöku.

 

Tillögurnar fjórar heita Sólborg, Spot on, Evolve Kársnes og Harbouring life. Í tilkynningunni segir að tillögurnar eigi það sammerkt að vilja efla samfélagið á Kársnesi, nýta einstaka staðsetningu þess og mögulegar tengingar við Vatnsmýrina í Reykjavík, styrkja útivistarsvæði og koma með umhverfisvænar lausnir í mannvistar- og samgöngumálum.

Auk Kársness voru Sege Park í Malmö, Tryggve Lies Plass í Osló, Hans Tavsens Park og Korsgade í Kaupmannahöfn, Runavík í Færeyjum og Kera iðnaðarhverfið í Espoo í Finnlandi valin til þátttöku í Nordic Built Cities Challenge.

Skipuð var dómnefnd á hverjum stað. Íslensku dómnefndina skipa Guðný Björk Eydal, Hrafnkell Proppé, Karl Benediktsson, Þór Sigfússon og Þóra Kjarval.

Alls bárust 19 tillögur í samkeppnina um Kársnes. Tillögurnar eru undir nafnleynd sem ekki verður aflétt fyrr en að lokinni keppni síðar á þessu ári.

Kópavogsbær sér um framkvæmd fyrri hluta keppninnar og mun hin íslenska dómnefnd velja eina tillögu sem send verður í lokahluta keppninnar. Í honum etja kappi sigurtillögur frá hverju hinna Norðurlandanna.

Nánari upplýsingar má nálgast hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×