Innlent

Vaka sigraði í kosningum til Stúdentaráðs

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, bar sigurorð af Röskvu, samtökum félagshyggjusinnaðra stúdenta, í kosningum til stúdentaráðs Háskóla Íslands í ár
Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, bar sigurorð af Röskvu, samtökum félagshyggjusinnaðra stúdenta, í kosningum til stúdentaráðs Háskóla Íslands í ár
Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, bar sigurorð af Röskvu, samtökum félagshyggjusinnaðra stúdenta, í kosningum til stúdentaráðs Háskóla Íslands í ár sem fram fóru í dag og í gær. 

Eftir að niðurstöður voru tilkynntar kom í ljós að Vaka hafði hlotið 17 sæti en Röskva 10 sæti. 27 fulltrúar skipa Stúdentaráð en stúdentaráðsfulltrúar sitja einnig í svokölluðum sviðsráðum stúdenta við HÍ. Í raun er kosið í sviðsráðin á hverju sviði fyrir sig og þeir fulltrúar sem ná kjöri í sviðsráðin mynda svo Stúdentaráð.

Einn nemandi, Gierde Razgute, bauð sig fram sem einstakling en hún hlaut ekki kosningu.

14.031 voru á kjör­skrá og var kjörsókn 41,57%. Alls voru greidd 5.832 atkvæði.

Vaka heldur því meirihluta sínum í Stúdentaráði en í kosningum til Stúdentaráðs á síðasta ári hlaut Vaka einnig 17 sæti og Röskva 10.

Úrslitin á sviðunum fimm var sem hér segir:

Félagsvísindasvið - Kjörsókn 40%

Röskva 2 sæti af 7

Vaka 5 sæti af 7

Heilbrigðisvísindasvið - Kjörsókn 52,5%

Röskva 2 sæti af 5

Vaka 3 sæti af 5

Hugvísindasvið - Kjörsókn 35%

Röskva 3 sæti af 5

Vaka 2 sæti af 5

Menntavísindasvið - Kjörsókn 34%

Röskva 1 sæti af 5

Vaka 4 sæti af 5

Verk- og náttúruvísindasvið - Kjórsókn 52%

Röskva 2 sæti af 5

Vaka 3 sæti af 5




Fleiri fréttir

Sjá meira


×