Erlent

Þrjú dauðsföll rakin til Zika-veirunnar

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Vísbendingar hafa verið um að veiran valdi fósturskaða þannig að börn fæðist vansköpuð, eða með svokallað dverghöfuð.
Vísbendingar hafa verið um að veiran valdi fósturskaða þannig að börn fæðist vansköpuð, eða með svokallað dverghöfuð. vísir/epa
Að minnsta kosti þrjú dauðsföll hafa verið rakin til Zika-veirunnar í Kólumbíu í Suður-Ameríku, að sögn heilbrigðisyfirvalda þar í landi. Um er að ræða fyrstu dauðsföllin tengd veirunni en sex önnur eru nú til rannsóknar.

Talið er að veiran hafi valdið taugasjúkdómnum Guillain-Barre, sem getur leitt til lömunar, en er læknanlegur í flestum tilfellum.

Sjá einnig: Hvað er Zika?



Zika-veiran hefur hingað til verið sögð nokkuð hættulítil en vísbendingar hafa verið um að veiran valdi fósturskaða þannig að börn fæðist vansköpuð, eða með svokallað dverghöfuð. Hún smitast með biti moskítóflugunnar en jafnframt er talið að hún geti smitast við kynmök. Þá hefur hún jafnframt greinst í þvagi og munnvatni.

Yfir tuttugu þúsund manns í Kólumbíu hafa greinst með veiruna, þar af yfir tvö þúsund þungaðar konur. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir á heimsvísu vegna veirunnar en óttast er að yfir fjórar milljónir manna muni smitast af henni.


Tengdar fréttir

Zika vírusinn fannst í Texas

Zika vírusinn, sem breiðist nú hratt út um Suður Ameríku hefur nú fundist í manneskju í Texas í Bandaríkjunum. Hingað til hafa flestöll tilfelli sjúkdómsins borist í menn í gegnum bit moskítóflugunnar en í tilfellinu í Texas virðist vírusinn hafa smitast í gegnum kynmök, að því er breska ríkisútvarpið greinir frá.

Hvað er Zika?

Neyðarástandi hefur verið lýst yfir vegna Zika-veirunnar. En hvað er Zika og hvaða afleiðingar getur hún haft?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×