Sport

Mikilvægur bardagi í þyngdarflokki Gunnars í nótt

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Hendricks í flottu formi fyrir bardagann.
Hendricks í flottu formi fyrir bardagann. Vísir/Getty
Það verður spennandi bardagi í þyngdarflokki Gunnars í nótt þegar þeir Johny Hendricks og Stephen Thompson mætast. Báðir geta þeir komist ansi nálægt titilbardaga með sigri.

Johny Hendricks tapaði veltivigtarbeltinu í desember 2014 í sinni fyrstu titilvörn og er óhætt er að segja að orðspor hans hafi beðið hnekki síðan hann var meistari.

Hendricks þótti væla full mikið í fjölmiðlum eftir tapið þar sem honum fannst hann vinna bardagann. Eftir bardagann sagðist hann aðeins vilja titilbardaga en mátti sætta sig við bardaga við hinn eitilharða Matt Brown.

Hendricks vann þann bardaga en bardaginn þótti langt í frá skemmtilegur. Hendricks fékk því ekki titilbardaga aftur eins og hann vonaðist eftir en fékk þess í stað bardaga gegn Tyron Woodley.

Sigur í þeim bardaga hefði að öllum líkindum gefið sigurvegaranum titilbardaga en því miður fór sá bardagi aldrei fram. Aðeins sólarhringi fyrir bardagann var bardaginn blásinn af.

Johny Hendricks hafði reynt að skera of mikið niður á of skömmum tíma og þurfti að flytja hann á sjúkrahús rúmum sólarhringi fyrir bardagann. Hendricks er þekktur fyrir að tútna út á milli bardaga og reynir að skera of mikið niður á of skömmum tíma til að ná 77 kg veltivigtartakmarkinu. Talið er að Hendricks verði allt að 100 kg þegar hann er ekki að undirbúa sig fyrir bardaga.

Hendricks var talsvert gagnrýndur eftir atvikið og vildu margir sjá Hendricks skipaðan upp í millivigt. Hendricks lofaði hins vegar að taka sig á og er allt annað að sjá hann núna.

Hann er talsvert grennri og var niðurskurðurinn nokkuð auðveldur fyrir hann í þetta sinn. Hann er einnig meðvitaður um að hann þarf að breyta lífstíl sínum ef hann ætlar að verða meistari aftur og það virðist hann hafa gert.

Með sigri á Stephen Thompson í kvöld getur hann komið sér aftur í titilbaráttuna og jafnvel skorað aftur á meistarann Robbie Lawler.

Hendricks er talinn sigurstranglegri hjá veðbönkum en Thompson er með vopn í vopnabúrinu sem geta klárað bardaga samstundis. Hér má sjá hvernig greinandinn Robin Black metur styrkleika beggja bardagamanna.

Bardagakvöldið verður sýnt í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og verða sex bardagar sýndir. Bein útsending hefst kl 3 en eftirtaldir bardagar fara fram:

Veltivigt: Johny Hendricks gegn Stephen Thompson


Þungavigt: Roy Nelson gegn Jared Rosholt


Léttþungavigt: Ovince Saint Preux gegn Rafael Cavalcante


Fluguvigt: Joseph Benavidez gegn Zach Makovsky


Léttþungavigt: Misha Cirkunov gegn Alex Nicholson


Veltivigt: Mike Pyle gegn Sean Spencer

MMA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×