Sport

Peyton endar ferillinn sem NFL-meistari og getur þakkað vörninni sinni fyrir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar

Denver Broncos varð í nótt meistari í ameríska fótboltanum eftir 24-10 sigur á Carolina Panthers í fimmtugasta Super Bowl leiknum sem fram fór á Levi´s leiknum í San Francisco.

Hinn 39 ára gamli Peyton Manning varð þar með NFL-meistari í annað sinn á ferlinum en þetta var væntanlega hans síðasti leikur á mögnuðum ferli. Manning var þó ekki valinn mikilvægasti leikmaður úrslitaleiksins því hann getur þakkað vörninni sinni að hann getur hætt á toppnum.

Denver Broncos vörnin lokaði nær öllum leiðum fyrir Cam Newton og hans menn í Carolina Panthers liðinu. Liðið, sem vann 15 af 16 deildarleikjum sínum og brunaði inn í Super Bowl með sannfærandi sigrum í úrslitakeppninni, fann fá svör á móti bestu vörn deildarinnar.

Hápunkta úr leiknum í nótt má sjá hér að neðan.

Von Miller var valinn besti leikmaður úrslitaleiksins en hann náði tveimur boltum af Cam Newton í leiknum og var auk þess með 2,5 leikstjórnandafellur.

Cam Newton var valinn besti leikmaður NFL-deildarinnar í gær en hann stóð ekki undir nafni í dag. Það gekk lítið sem ekkert upp hjá liðinu og þrátt fyrir að vörnin hafi staðið sig vel lengstum var sóknarleikurinn hrein hörmung. Cam Newton kallar sig Súperman en Denver-liðið var með nóg af kryptonite í þessum leik. 

Cam Newton var niðurlútur á blaðamannafundi eftir leikinn og yfirgaf hann fyrr en reiknað var með.

SUPER LOW: A deeply disappointed Carolina Panthers quarterback Cam Newton had few words for the media following his team...

Posted by FB Newswire on Monday, February 8, 2016

Þegar upp var staðið var það gamli herramaðurinn sem fagnaði sigri á meðan besti leikmaðurinn tók mótlætinu eins og lítill drengur. Cam Newton fær fleiri tækifæri til að vinna titilinn en þau verða ekki á móti Peyton Manning.

Þetta er í þriðja sinn sem Denver Broncos vinnur NFL-titilinn en liðið varð einnig meistari 1997 og 1998. Þá var John Elway leikstjórnandi liðsins en hann er núna framkvæmdastjóri Denver Broncos.

Peyton Manning keyrði þetta strax í gang í byrjun leiks og Denver Broncos liðið komst upp völlinn í fyrstu sókn. Fyrsta sóknin skilaði þó bara vallamarki frá sparkanum Brandon McManus en Denver-liðið var komið í 3-0 forystu.

Denver Broncos vörnin átti síðan næsta leik. Von Miller vann boltann af Cam Newton og annar varnarmaður, Malik Jackson, fylgdi því eftir, skoraði snertimark og kom Denver Broncos í 10-0 forystu.

Carolina Panthers, var ólíkt sér í upphafi, en liðið náði þó að svara með snertimarki frá Jonathan Stewart sem minnkaði muninn í þrjú stig, 10-7. Eftir það var þó lítið af frétt af sóknartilburðum Cam Newton og félaga.

Brandon McManus, sparkari Denver, skoraði annað vallarmark áður en hálfleikurinn var úti og Broncos liðið því sex stigum yfir í hálfleik, 13-7.

Peyton Manning er kóngurinn en hans bestu tilþrif í leiknum má sjá hér að neðan.

Denver Broncos vörnin átti frábæran hálfleik og Cam Newton komst lítið áleiðis. Carolina Panthers tapaði tveimur boltum og Newton var felldur fjórum sinnum í hálfleiknum. Denver-varnarmennirnir Von Miller og DeMarcus Ware skinu skærast og virtust nærast á stressi Panthers-leikmannanna.

Brandon McManus skoraði annað snertimark í þriðja leikhlutanum og áfram gekk lítið sem ekkert hjá Carolina Panthers sókninni. Þeir skoruðu eitt snertimark en munurinn var ennþá sex stig. 16-10.

Von Miller hitti á frábæran dag.

Úrslitin réðustu síðan þegar Von Miller vann boltann aftur af Cam Newton og C.J. Anderson skoraði síðan snertimark í sókninni á eftir. Peyton Manning reyndi tveggja stiga aukasókn í kjölfarið og hún heppnaðist.

Denver Broncos var því komið fjórtán stigum yfir, 24-10, og þá voru bara rúmlega þrjár mínútur eftir af leiknum. Carolina Panthers breyttu engu á lokamínútunum og Denver Broncos fagnaði sigri.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×