Handbolti

Canellas á förum frá Kiel

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Canellas var í silfurliði Spánar á EM í Póllandi.
Canellas var í silfurliði Spánar á EM í Póllandi. vísir/getty
Spænski handboltamaðurinn Joan Canellas yfirgefur Þýskalandsmeistara Kiel eftir tímabilið og gengur í raðir makedónska stórliðsins Vardar Skopje.

Canellas er með samning við Kiel til ársins 2017 en hann fékk gott samningstilboð frá Vardar að því er fram kemur á heimasíðu Kiel.

Canellas kom til Kiel frá Hamburg 2014 og varð þýskur meistari með liðinu í fyrra. Kiel er sem stendur í 2. sæti þýsku deildarinnar, tveimur stigum á eftir toppliði Rhein-Neckar Löwen.

Nokkrar breytingar verða á liði Kiel fyrir næsta tímabil. Auk Canellas, þá yfirgefa hornamaðurinn Dominik Klein og markvörðurinn Nikolas Katsigiannis liðið.

Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel, fær hins vegar skytturnar efnilegu Nikola Bilyk og Lukas Nilsson, reynsluboltann Blazenko Lackovic, austurríska hornamanninn Raul Santos og þýska markvörðinn Andreas Wolff sem sló svo eftirminnilega í gegn á EM í Póllandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×