Fótbolti

Rapid Vín með augastað á Arnóri Ingva

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Arnór Ingvi í leik með Norrköping.
Arnór Ingvi í leik með Norrköping. mynd/ifk norrköping
Arnór Ingvi Traustason gæti verið á leið til Austurríkis en eitt af stórliðum landsins hefur áhuga á honum.

Það er lið Rapid Vín en vefsíða Krone greinir frá áhuga þeirra í dag.

Í frétt þeirra kemur fram að Arnór Ingvi hafi ekki viljað koma til félagsins í janúar en gæti verið opinn fyrir því að koma eftir EM næsta sumar.

Einnig er sagt að Arnór Ingvi sé verðlagður á um 115 milljónir króna af félagi sínu, Norrköping.

Rapid Vín er sem stendur í þriðja sæti austurrísku úrvalsdeildarinnar. Þrem stigum á eftir toppliði Salzburg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×