Handbolti

Ævintýrið er dagsatt

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Dagur Sigurðsson fagnar á hliðarlínunni í gær. Hans menn unnu nauman sigur á Noregi í æsispennandi undanúrslitaleik í Póllandi. Fréttablaðið/AFP
Dagur Sigurðsson fagnar á hliðarlínunni í gær. Hans menn unnu nauman sigur á Noregi í æsispennandi undanúrslitaleik í Póllandi. Fréttablaðið/AFP
Gengi þýska handboltalandsliðsins á EM í Póllandi er kallað ævintýri í þýskum fjölmiðlum. Skyldi engan undra. Liðið er komið alla leið í úrslitaleikinn á ógnarsterku Evrópumeistaramóti þrátt fyrir að hafa misst lykilmenn í nánast öllum leikstöðum í aðdraganda mótsins. Þýskaland vann Noreg í æsispennandi framlengdum undanúrslitaleik í gær, 34-33.

Degi Sigurðssyni er nú hampað sem hetju í Þýskalandi og honum er að stærstum hluta þökkuð sú mikla velgengni sem liðið hefur náð í Póllandi. Liðið hefur, undir handleiðslu Dags, staðist hverja raunina á fætur annarri og afrekað að standa uppi sem sigurvegari í þremur leikjum í röð – fyrst gegn Rússlandi í afar mikilvægum leik í milliriðli, svo gegn Dönum þar sem sæti í undan­úrslitum var í húfi og nú gegn spræku liði Noregs í undanúrslitum.

Sjá einnig: Dagur fær Spánverja

Norðmenn geta sjálfum sér um kennt að hafa ekki nýtt sér sterka stöðu þegar lítið var eftir af venjulegum leiktíma. Ole Erevik hafði átt stórleik í norska markinu en Norðmenn hleyptu Þjóðverjum inn í leikinn á ögurstundu.

Noregur var marki yfir og með boltann þegar rúm mínúta var eftir af venjulegum leiktíma en fór illa að ráði sínu í uppstilltri sókn eftir leikhlé. Christian O’Sullivan tók slæmt skot, Þýskaland komst í sókn og Rune Dahmke tryggði framlenginguna með frábæru marki um 20 sekúndum fyrir leikslok.

Þýskaland var svo skrefi framar í framlengingunni og skoraði Kai Häfner sigurmarkið þegar lítið var eftir af henni. Gríðarlegur fögnuður braust út meðal þýsku leikmannanna.

„Ég er svo ótrúlega stoltur og glaður með það sem okkur hefur tekist að afreka á þessu móti,“ sagði Dagur á blaðamannafundi eftir leik. „Okkur hefur tekist að bæta okkur með hverjum leik en stærstu prófraunina fengum við í dag, enda Noregur afar öflugur andstæðingur.“

Sjá einnig: Norðmenn lögðu fram kæru eftir tapið

Hann sagði í viðtali við þýska sjónvarpið strax eftir leik hafa vitað að leikurinn myndi ráðast í framlengingu. „Ég skrifaði það á töfluna mína,“ sagði hann í léttum dúr. „Ég veit að áhuginn og gleðin er mikil heima en við verðum að halda einbeitingu og halda áfram að undirbúa okkur. Það er enn einn leikur eftir.“

Spánn verður andstæðingur Þýskalands í úrslitaleiknum á morgun en Spánverjar höfðu betur gegn Króötum í síðari undanúrslitaleik gærkvöldsins.


Tengdar fréttir

Dagur fær Spánverja

Spánverjar unnu fjögurra marka sigur á Króatíu í síðari undanúrslitaleik kvöldsins á EM í handbolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×