Innlent

Útganga Breta úr ESB gæti leitt til uppstokkunar í Evrópu

Heimir Már Pétursson skrifar
Árni Páll Árnason.
Árni Páll Árnason.
Árni Páll Árnason formaður Samfylkingarinnar segir engan hafa komið fram með fullnægjandi svör við því hvað tæki við ef Bretar ganga úr Evrópusambandinu eftir þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðild þeirra á næsta ári.

Þeim sem vilja að Bretar ganga úr sambandinu hefur vaxið ásmegin undanfarna mánuði og verið fleiri en þeir sem vilja aðild. En í dag birtir Sky fréttastofan nýja könnun þar sem 54 prósent Breta segjast vilja vera áfram í sambandinu, 36 prósent vilja úrsögn en 10 prósent eru óákveðin.

„Hvað þá? Ef að ákveðið verði að ganga úr ESB. Með hvaða hætti ætla menn þá að tryggja efnahagslega hagsmuni Bretlands? Vegna þess að enginn sér aðild að EES, með því áhrifaleysi sem að þeirri aðild fylgir, sem raunverulegan valkost fyrir Bretland,“ segir Árni Páll.

Það sé ómögulegt að segja hvaða áhrif útganga Breta myndi hafa á samskipti Íslendinga við þá og stöðu Íslands í Evrópu og mögulega aðildarumsókn í framtíðinni. Útganga Breta gæti leitt til frekari uppstokkunar í Evrópu.

„Það er auðvitað þannig að það eru líka margir þættir sem að eru að valda þrýstingi á Evrópusambandið núna, eins og flóttamannavandinn og önnur slík verkefni. Sem eru hins vegar þess eðlis að þau eru ekki auðleysanlegri ef að ríkin slíta samstarfi við önnur ríki.“

Hins vegar hafi enginn málsmetandi stjórnmálamaður í Bretlandi getað útlistað hvað ætti að taka við ef Bretar yfirgefa Evrópusambandið.

„Meira að segja forsætisráðherra Bretlands, sem er að hefja þessa vegferð, hann vill ekki að Bretlandi gangi úr Evrópusambandinu. Þannig að þetta er svolítið skrítið, að bjóða fólki upp á valkost um eitthvað sem að enginn treystir sér til að taka ábyrgð á,“ sagði Árni Páll Árnason.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×